Fara í efni

Hver er besti möguleikinn til að lifa af hjartaáfall ef þú ert einn?

Um árabil hefur póstur farið um netið þar sem fólki sem fær hjartaáfall í einrúmi er ráðlagt að hósta. Þetta eru rangar upplýsingar og eiga ekki við nein rök að styðjast. Hér fyrir neðan færðu að vita af hverju og hvað þú átt raunverulega að gera í þessum aðstæðum.
Hjartaáfall

Hjartaáföll geta verið ógnvænleg og jafnvel lífshættuleg, sérstaklega ef þú þekkir ekki viðvörunarmerkin.

Skjót viðbrögð skipta miklu máli og læknishjálp er nauðsynleg þegar um hjartaáfall er að ræða til að koma í veg fyrir skemmdir á hjartavöðva eða jafnvel dauða. En hvernig áttu að lifa af hjartaáfall þegar þú ert einn/ein?

Hver eru einkennin ?

Til að lifa af hjartaáfall þegar þú ert einn/ein, er mikilvægt að þekkja einkennin og hvað gerist meðan á þessu ferli stendur.

Samkvæmt því sem kemur fram á vef Mayo Clinic verður hjartaáfall þegar hindrun verður á blóðflæðinu til hjartans vegna blóðtappa í kransæðunum.

Kransæðarnar sjá til þess að næra hjartavöðvann með blóði og ef truflun verður á því getur hjartavöðvinn skemmst og í alvarlegustu tilfellum getur það leitt til dauða.

Viðvörunarmerki hjartaáfalls eru yfirleitt mild, og mjög margir myndu skrifa þau einkenni á aðrar heilsufarslegar ástæður. Vegna þessa er reynslan sú að fólk bíður að meðaltali í 3 klukkutíma  áður en leitað er aðstoðar vegna hjartaáfalls.

Dæmi um einkenni:

  • Þrýstingur eða herpingur í brjósti
     
  • Þreyta
     
  • Mæði
     
  • Viti eða kaldur sviti
     
  • Kviðverkir
     
  • Brjóstsviðatilfinning
     
  • Svimi
     
  • Yfirliðstilfinning
     
  • Hjartastopp
     
  • Ógleði
     
  • Óreglulegur hjartsláttur
     
  • Óþægindi eða verkir í baki, hálsi eða kjálka

Það er mikilvægt að vita að hjartaáföll geta líka átt sér stað án þess að gera boð á undan sér og ef einkenna verður vart geta þau verið ólík hjá körlum og konum.

Hvað áttu að gera til að lifa af hjartaáfall þegar þú ert einn/ein ?

Til að læra hvernig maður getur aukið möguleika sína til að lifa af hjartaáfall  er mikilvægt að byrja á því að leiðrétta mýtu sem lengi hefur verið á sveimi um hvernig hægt sé að lifa af hjartaáfall.

Samkvæmt Rochester General hefur fjöldapóstur gengið manna á milli á internetinu undanfarinn ár. Í þessum fjöldapósti hefur því verið haldið fram að einstaklingur sem fengi hjartaáfall ætti að hósta síendurtekið til að bjarga sér frá dauða.

Í fjöldapóstinum kom fram að hann væri upprunnin frá Rochester General, en það er alrangt.

„Við finnum engin gögn sem renna stoðum undir það að þessi fjöldpóstur hafi verið útbúinn eða sendur út af Rochester General á undanförnum 20 árum. Auk þess eiga læknisfræðilegar upplýsingar sem koma fram í umræddri grein sér enga stoð í læknisfræðilegum gögnum né eru viðurkennd af starfsmönnum Rochester General segir talsmaður stofnunarinnar“.

Þannig ef það að hósta hjálpar ekki, hvað á fólk þá að gera? Ekki bíða alla vega.

„Hægt væri að koma í veg fyrir mörg dauðsföll með því að bregðast skjótt við og fá rétta meðferð strax,“ segir Dr. Robert Frankel sérfræðingur í kransæðavíkkunum við Maimondides Medical Center. Það er algengt að fólk finni fyrir þyngslum fyrir brjósti og verkurinn getur leitt út í vinstri handlegg eða upp í háls.“

Samkvæmt því sem Dr. Frankel segir þá er það mikilvægasta sem einstaklingur getur gert til að lifa af hjartaáfall þegar viðkomandi er einsamall, að þekkja einkennin.

Marmiðið á að vera að vera komin undir læknishendur þar sem hægt er að opna æðina sem stíflast innan 90 mínútna. Rannsóknir sína jafnframt að betra sé að fara með sjúkrabíl heldur en að keyra sjálfur á sjúkrahús.

Þegar búið er að hringja í sjúkrabíl –jafnvel áður en að því kemur- og þú býður eftir aðstoð, ættir þú að taka 162-325 mg af aspiríni eða magnýl sem við þekkjum nú betur hér á Íslandi.

Af hverju magnýl? Samkvæmt Harvard Medical School bendir allt til þess að magnýl sé mikilvægt þegar um hjartaáfall (bráða kransæðastíflu) er að ræða vegna þess að blóðtappar í kransæðum stækka með hverri mínútu sem líður. Með því að taka strax inn magnýl er komið í veg fyrir að blóðflögurnar loði saman og þar með er búið að fyrirbyggja að blóðtappinn stækki og versni og valdi með því jafnvel enn meiri skaða.

Núverandi leiðbeiningar benda til þess að einstaklingur hafi bestan möguleika á því að lifa af hjartaáfall þegar viðkomandi er einsamall, með því að tyggja magnýl (aspirín) áður en lyfinu er kyngt í stað þess að taka kyngja henni heilli. Rannsóknir benda til að magnýltafla sem er tuggin, er 5 mínútum síðar búinn að draga úr viðloðun blóðflagna um 50% og 14 mínútum síðar er taflan búinn að ná hámarksvirkni.

Ef taflan er gleypt í heilu lagi, virkar hún líka en það tekur hana 12 mínútur að ná 50% virkni og 26 mínútur að ná hámarks virkni.

Áttu ekki magnýl (aspirín)? Einstaklingur getur líka tekið inn Alka-Seltzer töflu með smá vatni.

Samkvæmt rannsókn sem framkvæmd var við Harvard Medical School tekur það Alka-Seltzer 8 mínútur að ná 50% virkni á blóðflögurnar og 16 mínútur að ná fullri virkni.   

Alka Seltzer inniheldur aspirín og gæti þess vegna komið að gagni þegar um hjartaáfall er að ræða. 

Ég held hinsvegar að alka seltzer sé ekki til á Íslandi en starfsfólk apóteka getur væntanlega bent á eitthvað sambærilegt.

Samkvæmt upplýsingum frá Harvard Medical School þá er besta virkin fengin með því að tyggja 325mg af magnýl (aspirín) ef grunur leikur á því að um hjartaáfall sé að ræða og ætti að tyggja töfluna eins fljótt og auðið er en forðast húðaðar töflur þar sem þær seinka virkni lyfsins. Jafnvel þó þær séu tuggðar.

Ef þú ert einn/ein og ert með sögu um hjartasjúkdóm, áttu kannski nú þegar til annað áríðandi lyf við höndina. Þetta er nitroglyserin eða eins og þær eru oft kallaðar, sprengitöflur.  Ef grunur leikur á því að þú sért að fá hjartaáfall taktu þær strax eins og leiðbeiningar segja til um. Aldrei skal neyta sprengjutaflna frá öðrum þar sem slíkt getur skapað alvarleg vandræði.

Lykilatriðið er að þekkja einkennin, kalla umsvifalaust á hjálp auk þess að taka magnýl (aspirín) og sprengitöflu eins fljótt og mögulegt er.

Þetta er það besta sem þú getur gert til að auka möguleika þín á því að lifa af hjartaáfall ef þú er ein/einn.

Án þess að það sé hægt að tryggja það fólk lifi af með þessum aðferðum geta þessi atriði verið lífsbjargandi og verið besti möguleiki þinn til að komast undir læknishendur í tíma.

Heimild: hjartalif.is