Hver hlaut Hvatningarverðlaun ÖBÍ í ár?
Síðdegis í dag, 3. desember á alþjóðadegi fatlaðs fólks mun ÖBÍ veita Hvatningarverðlaun sín í áttunda sinn.
Megin tilgangur verðlaunanna er að varpa ljósi á þá sem hafa með jákvæðum hætti stuðlað að einu samfélagi fyrir alla.
Tilnefndir eru:
Í flokki einstaklinga
- Ólafur Helgi Móberg, fyrir að láta ekki fordóma hindra sig í lífi og starfi.
- Ólafur Ólafsson, fyrir að helga líf sitt íþróttum fatlaðs fólks.
- Snorri Már Snorrason, fyrir verkefnið „Þín hreyfing – þinn styrkur“.
Í flokki fyrirtækja/stofnana:
- Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, fyrir ritun bókarinnar „Litróf einhverfunnar“.
- Háskóli Íslands, fyrir starfstengt diplómanám fyrir fólk með þroskahömlun.
- Vin – athvarf, fyrir rekstur athvarfs fyrir fólk með geðraskanir.
Í flokki umfjöllunar/kynningar:
- Arnar Helgi Lárusson, fyrir frumkvæði að átakinu „Aðgengi skiptir máli“.
- Borgarleikhúsið, fyrir að opna heim leikhússins fyrir fötluðu fólki.
- Embla Guðrúnar Ágústsdóttir og Guðrún Hjartardóttir, fyrir erindi sitt „Af hverju er barnið mitt ekki úti að éta sand?“.
Veitt eru verðlaun í þrem flokkum, flokki einstaklinga, flokki fyrirtækja/stofnanna og flokki umfjallana/kynninga.
Ólafur Ólafsson, formaður íþróttafélagsins Aspar, hlaut verðlaunin í flokki einstaklinga fyrir að helga líf sitt íþróttum fatlaðs fólks.
Í flokki fyirtækja og stofnanna hlaut Háskóli Íslands verðlaunin, fyrir starfstengt diplómanám fyrir fólk með þroskahömlun.
Arnar Helgi Lárusson hlaut síðan verðlaunin í flokki umfjallana og kynninga fyrir frumkvæði að átakinu „Aðgengi skiptir máli“.
Verndari verðlaunanna er Hr. Ólafur Ragnar Grímsson Forseti Íslands og afhenti hann verðlaunin, en þetta er í sjöunda skipti sem þessi verðlaun eru veitt.
Hönnuður verðlauna er Þórunn Árnadóttir, vöruhönnuður.