Fara í efni

Hvernig á að losna við andfýlu

Morgunandremma er leiðinlegt vandamál, reyndar er ekki svo erfitt að losna við hana með tannburstanum en þessar örfáu mínútur sem geta liðið frá því að við vöknum og þar til burstinn vinnur sitt verk virðast stundum margar klukkustundir. Nú hafa vísindamenn uppgötvað að ein baktería sem lifir í munninum okkar getur breytt aðstæðum þar til hins betra og látið andremmuna heyra sögunni til.

Helsta ástæða þess að við verðum andfúl á morgnanna er að á meðan við sofum myndast aðstæður í munninum sem henta betur bakteríum sem framleiða illa lyktandi gastegundir. En hvað ef við gætum haldið vexti þessara baktería í skefjum?

Lausnin virðist felast í því að hafa bakteríuna Streptococcous salivarius til staðar í munninum. Þessi baktería heldur andfýlu-bakteríunum í skefjum jafnvel ef aðstæður breytast í stuttan tíma. Í samantekt sinni á Business Insider bendir Lydia Ramsey á að mögulega væri hægt að koma bakteríunni fyrir í munnspreyi eða munnskoli, til að passa uppá að henni sé viðhaldið í munninum.

Hingað til hafa ekki komið á markað fyrirbyggjandi munnskol sem innihalda bakteríur, einungis munnskol sem drepa allar bakteríur. Mögulega munum við þó sjá breytingu þar á í framtíðinni en áður en það gerist þarf að rannsaka hvort Streptococcous salivarius hafi mögulega einhver önnur áhrif á líkamann. Það verður spennandi að sjá hvort morgunandremman verði mögulega vandamál sem barnabörnin okkar kannast ekki við.

Grein af vef hvatinn.is