Hvernig á að matreiða ofnæmisfæði á ÖRUGGAN HÁTT ? NÁMSKEIÐ Á EGILSTÖÐUM
Athugið þið sem eruð fyrir austan - þetta námskeið er á Egilsstöðum. Hugmyndir eru uppi um dagsetningar 11. og 12. mars.
Námskeið um eldun ofnæmisfæðis á vegum Astma- og ofnæmisfélags Íslands (AO).
Markmiðin
Meginmarkmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna.
Markhópur
Matráðir í eldhúsum í leik-, grunn- og framhaldsskólum, á sjúkrahúsum og öldrunarstofnunum. Einnig heimilisfræðikennarar, starfsmenn og stjórnendur í skólum.
Dagskrá
Bóklegt 2 ½ klst
*Tryggjum næga orku og góða næringu með hollum, góðum og öruggum mat Fríða Rún Kaffihlé
*Öryggi og ábyrgð gagnvart börnum og ungmennum með fæðuofnæmi. Selma
Umræður
Matarhlé á eigin vegum
Verklegt: 4 klst
*Eldum góðan og næringarríkan mat fyrir alla, einnig börn og ungmenni Margrét með ofnæmi og óþol.
Umræður og smakk
Hvenær:
Hugmyndir eru upp um dagsetningar 11. og 12. mars
Valkostur A)
Föstudagur: Bóklegt: 16:30 – 19:00
Laugardagur: Verklegt: 09:00 (10:00) til 13:00 (14:00)
Valkostur B)
Föstudagur: Bóklegt 12:00 – 14:30, hlé, Verklegt 15:00 – 19:00
Vinsamlegast skráið ykkur fyrir 27. febrúar með því að fylgja þessari vefslóð en þar er boðið upp á að merkja við valmöguleika.
Unnið verður úr þessum upplýsingum þegar fyrirkomulag námskeiðsins verður ákveðið.
Fjöldi og námskeiðsgjald.
Forsendur þess að námskeiðið verði haldið er að næg þátttaka fáist. Æskilegur fjöldi er 15 manns.
Kostnaður: 23.000 kr
Kennarar
Selma Árnadóttir, stjórnarmaður í AO og móðir ofnæmisbarns.
Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og næringarráðgjafi Eldhúsi Landspítala, formaður AO.
Margrét S. Sigbjörnsdóttir, kennari og umsjónaraðili með matartæknanemum við Menntaskólann í Kópavogi.
Annað
Sýndar verða ýmsar sérfæðisvörur auk þess sem matreiðslubókin Kræsingar verða til sölu
Ekki er komið á hreint hvar kennslan mun fara fram en upplýsingar um það munu berast þegar ákveðið hefur verið hvort námskeiðið fer fram og dagsetningar hafa verið staðfestar.
Fríða Rún Þórðardóttir
Formaður AO
Gsm:898-8798