Fara í efni

Hvernig vil ég eldast?

Eldra fólki hér á landi á eftir að fjölga gríðarlega á næstu árum eins og fram hefur komið. Ólafur Þór Gunnarsson lyf- og öldrunarlæknir hélt erindi á ráðstefnu sem var haldin nýlega í Ráðhúsi Reykjavíkur um heilsueflingu eldri aldurshópa.
Hvernig vil ég eldast?

Eldra fólki hér á landi á eftir að fjölga gríðarlega á næstu árum eins og fram hefur komið.

Ólafur Þór Gunnarsson lyf- og öldrunarlæknir hélt erindi á ráðstefnu sem var haldin nýlega í Ráðhúsi Reykjavíkur um heilsueflingu eldri aldurshópa.

Erindið hét, Hvernig er samfélagið að breytast- hvað er til ráða til að efla heilsu hinna eldri á næstu árum?

 

Hvað ætlum við að gera?

Ólafur benti á að á næstu þrjátíu árum myndi fjöldi sjötugra og eldri meira en tvöfaldast, frá því sem nú er. Fjöldi fólks 85 ára og eldri myndi næstum þrefaldast. Hjúkrunar- og dvalarrými á landinu  eru nú um 3000. Um það bil annar hver maður 85 ára og eldri getur gengið að vísu plássi á hjúkrunarheimili, verði þess þörf. „Hvað ætlum við að gera?“, spurði Ólafur Þór. „Þrefalda framlög til öldrunarþjónustu, viðhalda því viðmiði að annar hver maður 85 ára og eldri geti verið á hjúkrunarheimili?  Ef við ætlum að viðhalda núverandi ástandi, þyrfti að byggja 55 hjúkrunarheimili til að mæta þessari fjölgun aldraðra. Daggjöld miðað við um 8000 hjúkrunarrými sem þyrftu þá að vera fyrir hendi, næmu um 70 milljörðum króna á ári.

Vilja búa við öryggi heima

„Það er fáránleg framtíðarsýn að halda að við getum gert þetta, við verðum að nota einhverjar aðrar aðferðir“, sagði Ólafur Þór í samtali við Lifðu núna. „Það er líka ólíklegt að allur þessi fjöldi vilji vera á hjúkrunarheimilum. Menn vilja búa heima og fá þjónustu heim. Þó þú þurfir á aðstoð heilbrigðisstarfsmanns að halda einu sinni á dag í 10 mínútur, þá á það ekki að verða til þess að þú þurfir að fara inná hjúkrunarheimili“, segir hann. „Menn vilja búa heima sem lengst, en vilja samt sem áður búa við öryggi“.

Sólarhringsvakt við íbúðir eldra fólks

Ólafur Þór sér fyrir sér að öldrunarþjónustan muni breytast. Það verði meira um þjónustu, sem menn sem búa heima, geti kallað eftir þegar þeir þurfi hennar með. Hann bendir á að það mætti koma upp sólarhringsþjónustu í tengslum við íbúðir aldraðra sem er að finna á 10-20 stöðum á höfuðborgarsvæðinu. „ Ef það yrði ákveðið á morgun að staðsetja sólarhringsvakt á öllum þessum stöðum, myndi það draga úr þörf fyrir að fólk verði að fara á hjúkrunarheimili.  Þetta snýst um aðgengi að þjónustu, menn þurfa oft ekkert meira en það“, segir hann og bætir við að þetta mál hafi  alltaf strandað á því, það sé þægilegt fyrir sveitarfélögin að segja, „Nei, þetta er ekki okkar verkefni“. Það sé voðalega þægilegt, þá þurfi fólk að fara á hjúkrunarheimili og  vandamálið flytjist til ríkisins

Lykilatriði að þjónustan flytjist öll til sveitarfélaganna

Ólafur Þór sér líka fyrir sér stóraukna endurhæfingu fyrir eldra fólk. En það veki athygli að endurhæfingaplássum fyrir þennan hóp hafi ekki fjölgað frá hruni þegar allt var skorið niður, þó 85 ára fólki og eldra hafi fjölgað um 40% síðan þá. „Við höfum ekki enn náð stöðunni eins og hún var árið 2008. Þörfin hefur aukist umtalsvert, en við erum ekki að grípa inní“, segir hann. Hann telur það lykilatriði að öldrunarþjónustan flytjist öll til sveitarfélaganna.

Endurhæfing dregur úr veikindum

Þá sé líka brýnt að hjálpa fólki til að halda heilsu sem lengst, þannig að sá tími styttist sem það þarf að vera á hjúkrunarheimili. Þar er meðaldvalartíminn nú . . . LESA MEIRA