Í dag 6.nóvember byrja tvær konur að prufa buxur frá Lytess
Við fengum tvær konur til að prufa buxur sem heita „Stop Cellulite“.
Þessar buxur eiga að stinna húðina og minnka appelsínuhúð til muna.
Einnig munu þær prufa brjóstahaldara sem heitir „Sculpt and Lift“. En þessi haldari á að þétta, lyfta og stinna sigin brjóst.
Önnur konan er 43.ára en hin er 62.ára, okkur fannst skipta máli að hafa aldurmun til að geta sýnt muninn á húðinni miða við aldur.
Það má vera að þessar vörur virki ekki en þess vegna erum við nú að þessu. Kannski verður stór sjáanlegur munur á húð á lærum, maga og rassi en það gæti líka verið lítill sem enginn munur.
Einnig verður áhugavert að sjá hvort munur verður á brjóstum. (við tókum ekki fyrir myndir af þeim).
Þetta er brjóstahaldarinn sem verið er að prufa næstu 30.daga.
Við tókum í dag fyrir myndirnar af rassi, maga og lærum og þær myndir munu birtast eftir 10.daga þegar við tökum næst myndir.
Þessi tilraun okkar mun standa yfir í 30.daga.
Við þökkum Lytess á Íslandi fyrir aðstoðina og hlökkum til að sýna ykkur hvernig þessa vara virkar, ef hún virkar.
Þetta eru buxurnar sem verið er að prufa næstu 30.daga.
Kíkið á Facebook síðu Lytess á Íslandi og kynnið ykkur málið.
Endilega fylgist með.