Innköllun á nasli vegna vanmerkinga
Ferðanasl.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar að fyrirtækið Heilsa ehf. hefur í samráði við Heilbirgðiseftirlit Reykjavíkur ákveðið að taka úr sölu og innkalla Ferðanasl frá Sólgæti vegna ófullnægjandi innihaldslýsinga á miða.
Listinn yfir innihaldsefni vörunnar telur ekki upp öll innihaldsefni hennar.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
- Vörumerki: Sólgæti
- Vöruheiti: Ferðanasl
- Strikanúmer: 5024481297488
- Umbúðir: Plast
- Nettómagn: 250 g
- Dreifing: Heilsuhúsin, Melabúðin, Lyfja Lágmúla og Gló veitingar Fákafeni.
Neytendur sem hafa keypt vöruna eru vinsamlega beðnir um að skila henni í verslunina þar sem hún var keypt eða til Heilsu Bæjarflöt 1.
Ítarefni:
- Fréttatilkynning frá Heilsu ehf.
- Fréttatilkynning frá heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík ásamt mynd af vöru.
Af síðu mast.is