Fara í efni

"Ítalskur matur" sem er alls ekki frá Ítalíu - Fróðleikur frá Minitalia.is

Ítalska eldhúsið er eitt það allra frægasta í heiminum og hefur notið mikilla vinsælda um langt árabil. En það er ekki allur „ítalskur matur“ eða frægir „ítalskir réttir“ í rauninni frá Ítalíu. Kíkjum á fimm dæmi um „ítalskan mat“ sem er alls ekki frá Ítalíu.

Ítalska eldhúsið er eitt það allra frægasta í heiminum og hefur notið mikilla vinsælda um langt árabil.

En það er ekki allur „ítalskur matur“ eða frægir „ítalskir réttir“ í rauninni frá Ítalíu.

Kíkjum á fimm dæmi um „ítalskan mat“ sem er alls ekki frá Ítalíu. Skemmtilegur fróðleikur frá Minitalia.is


 
1. Spaghetti með kjötbollum

Þetta er einn af þessum réttum sem hafa orðið til í Bandaríkjunum og hefur verið tengdur við ítalska eldhúsið. Kjötbollur eru vel þekktar á Ítalíu en eru svo sannarlega ekki borðaðar með spaghettí.

 

2. Fettuccine Alfredo

Hún er skemmtileg sagan af rómverska matreiðslumanninum, Alfredo Di Lelio, sem fann upp þennan rétt á veitingahúsinu sínu við götuna Via dela Scrofa í Róm. Þessi réttur féll í kramið hjá bandarískum túristum og barst hróður hans til Bandaríkjanna svo um munaði. Í dag er þetta einn frægasti "ítalski rétturinn" í Bandaríkjunum þó svo hann þekkist ekki á Ítalíu.
 
 

3. Pizza Hawai

Pizzu með skinku og ananas finnur þú ekki á Ítalíu PUNKTUR!
 
 

4. Hvítlauksbrauð

Það er víða algengt að bjóða upp á hvítlauksbrauð með ítölskum mat en ekki á Ítalíu, þú myndir ekki finna svoleiðis þótt þú leitaðir víða. Prófaðu!
 

 

5. Ítölsk salatdressing

Á Ítalíu finnur þú ekki neina salatdressingu sem ber nafnið „Ítölsk salatdressing; þar er einungis notuð ólífuolía, salt og edik eða ólífuolíu, salt og balsamik edik eða ólífuolíu, salt og sítrónu. Allar aðrar dressingar eru upprunnar einhvers staðar langt í burtu frá hinni guðdómlegu Ítalíu.
 
 

Fróðleikur af vef minitalia.is