Kokós og Lime - þrusugóður drykkur
Einn hrikalega frískandi og bragðgóður drykku
Kókos er málið í dag.
Einn hrikalega frískandi og bragðgóður drykkur.
Hráefni:
1 dl kókosmjólk
2 dl ferskur vel þroskaður ananans (160 gr)
1/2 banani (má sleppa)
2 msk ristaðar kókosflögur frá himnesk hollusta
1 msk chia fræ
Lime safi úr ca. 1/2 lime
ca. 1 dl vatn
Allt sett í blandara og blandað vel. Ef þið viljið minnka kolvetni og auka prótein, þá getið þið sleppt banananum og bætt við hreinu próteini.