Köld tómatsúpa gaspacho borin fram með sýrðum rjóma og graslauk
Oh þetta er svo gott
Hráefni
6stk stórir buff tómatar
150gr sellerí
100gr grænar paprikur
1ltr tómat djús
1msk cummin
½ msk hvítlaukur
½ msk salt
1 msk svartur pipar
11/2 msk worshestershire sósa
1 msk ólífu olía
1 búnt sítrónumelissa
Aðferð
Tómatar, sellerí og paprikur eru maukaðar saman í þykkt mauk.
Djúsnum er þá hellt saman við og restin af hráefninu nema sírónumelissan látin saman við.
Sítrónumelissan er söxuð smátt og henni svo blandað saman við.
Súpan er látin standa í einn sólarhring áður en að hún er gefin.
Graslaukur og sýrður rjómi er svo borið fram með á hliðar diskum.