Kostirnir við að eldast
Fólki á öllum aldri finnst það orðið gamalt og þjáist vegna þess. 19 ára unglingar geta verið jafn þjakaðir af áhyggjum yfir aldri sínum og 55 ára fólk.
Ég hef verið að velta þessu fyrir mér, segir hin 57 ára gamla Kati Reijonen í pistli á Huffington Post. „Þeir segja að 50 sé hið nýja 30.
Ég segi 50 er 50 og það er líka allt í lagi.“ Lifðu núna endursagði og stytti pistilinn.
Að láta drauma sína rætast
Kati telur upp nokkur atriði sem gleðja og fylgja hækkandi aldri. Það eru nokkrir hlutir sem fólk yfir fimmtugt getur ekki gert en miklu fleiri sem það getur gert. Það er orðið of seint að ætla að læra að verða ballettdansari eða heilaskurðlæknir. Konur á þessum aldri verða heldur ekki ófrískar. Konur eru líka lausar við vesenið sem fylgir blæðingum. Er það ekki frábært, spyr Kari. Hún segir að það sé ýmislegt sem eldra fólk getur gert. Það getur til dæmis skrifað bækur, stofnað fyrirtæki, sofið út og hlustað á hallærislega tónlist án þess að skammast sín fyrir það. Það getur átt sér drauma og látið þá rætast.
Kari segist hafa heyrt það einhversstaðar að leyndardómur þess að verða hamingjusamari þegar fólk eldist sé að reyna að breiða það út að vísdómur fylgi hækkandi aldri. Það eigi að kenna yngra fólki að hlusta á eldra fólk og það sé oftar en ekki reiðubúið að hlusta. Eftir því sem aldurinn færist yfir þarf fólk ekki að uppfylla væntingar annnarra, því fólk vænti ekki svo margs af þeim sem eru að eldast. Fólk geti því gert það sem því sýnist hvenær sem því sýnist.
Aldur hefur ekkert með glæsileika að gera
Aldur hefur ekkert með glæsileika að gera. Julianne Moore er 55 ára og lítur frábærlega út. Jane Fonda er 77 ára og lítur sömuleiðis afar vel út. Aldur segir heldur ekkert um persónuleika fólks. Það er skrítið að fólk skuli eyða svo miklum tíma í að hugsa um aldur. Hvað er fólk að hugsa um þegar það veltir aldri fyrir sér? Töluna, hversu langan tíma það hefur hér á jörð. Útlit, heilsutengda sjúkdóma. Hvað sem það er nú sem fólk er að velta fyrir sér, ætti það að hætta að hugsa um það og einbeita sér að því að lífið er hér og nú. Þú ert það sem þú ert óháð aldri.
Aldri fylgir ávinningur . . . LESA MEIRA