Hollur og flottur Lambaréttur.
Skothelt gott og þvílíkt einfalt. Þetta elska allir hérna á mínu heimili.
Lambaréttur með Slim pasta.
Kvöldmaturinn.
Lambagúllas í ofni.
Lambagúllas
Sætar kartöflur
Kartöflur
Vorlaukur
Gulrætur
Gul paprika
Kúrbítur
Eggaldin
Hvítlaukur
Creola krydd
Saltverks salt
Pipar
Strá yfir smá af grænmetiskrafti frá Sollu
Matreiðslurjómi
Krydda kjötið með kryddinu og hvítlauknum.
Skera niður allt grænmetið og strá yfir kraftinum ( bara smá ) allt í eldfastmót.
Setja inn í ofn og elda.
Í lokin má setja yfir smá matreiðslurjóma.
Skothelt gott og þvílíkt einfalt.
Þetta elska allir hérna á mínu heimili.
Ég fæ mér Slim pasta spaghetti með en ég eldaði spelt pasta skrúfur fyrir hina :)
http://slimpasta.com/
Eigið gott kvöld .