Fara í efni

Langar þig lesandi góður að hjálpa okkur að gera Heilsutorg enn flottara og girnilegra með hollustu uppskriftum?

Við óskum eftir hollum og girnilegum uppskriftum frá ykkur lesendur.
Hér er allskyns hollusta á ferð
Hér er allskyns hollusta á ferð

Okkur á Heilsutorg.is langar að leita til ykkar lesenda núna. Við óskum eftir hollum, sniðugum og fumlegum uppskriftum frá ykkur ásamt mynd af góðgætinu.

Ef okkur líst vel á þá mun þín uppskrift vera birt á Heilsutorg og auðvitað mun koma fram hver á uppskriftina.

Hvernig líst ykkur á þetta ?

Einnig leitum við eftir reynslusögum frá ykkur. Ertu búin/n að vera í átaki og komin/n í gott form í dag? Hvers vegna ekki að senda okkur þína sögu ? Það er nefnilega svo skemmtilegt að heyra frá lesendum okkar. 

Við erum spennt að sjá hvað við fáum sent.

Það má senda allt á ritstjorn@heilsutorg.is

Einnig ef það eru einhverjar spurninga þá sendið póst á annabirgis@heilsutorg.is

Við bíðum spennt.

Kveðja frá Heilsutorgsteyminu