Fara í efni

Lífið er undur - hugleiðing á sunnudegi

Lífið er undur - hugleiðing á sunnudegi

Við höfum allt sem við þurfum – núna – til að lifa í friði og full- kominni velsæld. 

Það eina sem við þurfum að gera er að láta af fjarverunni og mæta inn í eigin tilvist, til félagsskapar við okkur sjálf. Að leysa upp egóið – skortdýrið – með því að mæta inn í tíðni hjartans. 

Við getum hvenær sem er öðlast heimild til velsældar með því að opna hjarta okkar og elska okkur í stað þess að hafna – að elska okkur samt. 

Að geta alltaf sagt við okkur sjálf: „Ég elska mig samt.“ 
Lífið er undur. Við getum á hvaða augnabliki sem er tekið ábyrgð, öðlast mátt og lifað viljandi.