Ljómandi vanilluís frá Ljómandi
Alveg æðislegur vanilluís frá Ljómandi.
Innihald: // 1 bolli nýmjólk / 1/2 líter þeyttur rjómi / 1/2 bolli hlynsíróp / smá salt / 1 msk vanillu extract eða vanilludropar / 1 vanillustöng (maukið innan úr) / VAL: 1-2 dropar vanillustevía en ekki nauðsynlegt.
- Byrjið á að þeyta rjómann.
- Skerið vanillustöngina langsum i tvennt og skafið dásamlegt vanillumaukið úr.
- Blandið svo saman í skál mjólkinn, hlynsírópinu, vanillumaukinu, vanillu extrakt-inu og saltinu og blandið vel.
- Bætið þessu síðan út í rjómann og hrærið vel saman.
- Hér má setja 1-2 dropa af vanillustevíu en það er alls ekki nauðsynlegt, smakkið til.
- Setjið eitthvað yfir skálina og kælið í ísskáp í amk. klukkustund eða yfir nótt.
- Setjið í ísvél og látið ganga í ca. 20 mínútur eða þar til tilbúið.
- Þið getið síðan borið ísinn strax fram eða sett í frysti í 20-30 mín.
Ég er engin ís manneskja en ég hér á heimilinu er stóra stelpan mín hún Edda og maðurinn minn mikið ísfólk.
Þegar þau gera sér glaðan dag er farið í ísbúð. Við Edda gerðum um jólin, jólaísinn hennar Ebbu sem er brjálæðilslega góður karamelluís og verður okkar jólaís hér eftir. Eddu langaði að prófa að gera vanilluís og varð þessi uppskrift fyrir valinu eftir smá leit á netinu.
Hann er eiginlega smá samansafn af uppskriftum svo ég stakk upp á að við mundum kalla hann vanilluísinn okkar en henni fannst það súper asnalegt svo hann heitir bara vanilluís.
Ef þið notið ekki ísvél og setjið ísinn beint í frysti er hann ekki eins mjúkur og verður meira vatnskenndur en alveg jafn bragðgóður. Ísvélin gerir smá töfra.
Njótið í botn~