10 fyrstu fá FRÍTT á námskeiðið
LYKILL AÐ GÓÐU LÍFI
Við kennum einfaldar aðferðir
HEILSUTORG.is býður 10 aðilum á námskeiðið.
Sendið póst á Heilsutorg@heilsutorg.is og við sendum ykkur staðfestingu til baka.
Námskeiðið byggir á fræðslu um meðvirkni.
Við kennum einfaldar aðferðir til að byggja upp sjálfstraust og sjálfsvirðingu.
Horft er á stjórnsemi og höfnun og skoðað hvernig við bregðumst við í daglegu lífi. Unnið er með mörk og leitast við að finna út hvað eðlileg mörk eru.
Við skoðum hvernig ábyrgðarkenndin er, hvað er skökk ábyrgð og hvernig eðlileg ábyrgðarkennd hjálpar okkur. Við lærum að standa með sjálfum okkur og virða þarfir okkar og langanir.
Stund: Þriðjudagur 4. nóvember klukkan: 18:00 – 21:00
Staður: Grensásvegur 16a
Bókanir: fjolskylduhus@fjolskylduhus.is eða í síma: 615 1368
Verð: kr. 5.000
Leiðbeinandi: Páll Þór Jónsson