Mánudagur og Guðni talar um forsendu hamingjunnar
Tilgangurinn er forsenda hamingjunnar – hann er „af hverju“? Af hverju gerirðu það sem þú gerir? Hver er tilgangurinn með því? Hvert stefnirðu með því sem þú gerir? Hvaða hlutverki viltu gegna?
Tilgangurinn er kjölfesta markmiðanna.
Markmið er „hvernig“? Hvernig ætlarðu að vinna í þágu tilgangsins og framkvæma sýnina? Eftir hvaða leiðum? Á hvaða vettvangi? Hvernig ætlarðu að auðkenna framlag þitt til heimsins? Hvernig viltu elska og ráðstafa ljósinu?
Markmið er leiðarvísir þegar það hefur tilgang og er heitbundið – annars erum við aðeins að elta skottið á sjálfum okkur. Markmið er skrifleg yfirlýsing um áfanga sem er ákvarðaður með tímasetningu og umgjörð. Markmiðið er mælanlegt, framkvæmanlegt, nákvæmt, verulegt og tímasett.
Framkvæmdaáætlun er nánari útfærsla á markmiðunum – hvernig ætlarðu að haga framgöngunni, t.d. í ljósi aðstæðna þinna?
Sýninn er innblásturinn – það sem hvetur þig áfram.
Sýnin er „hvað“? Hvaða verkefni ýta undir tilganginn og færa þig í átt að markmiðunum?
Í sýninni opinberast heimildin sem þú hefur til velsældar, því þú ferð aldrei lengra en þú getur séð fyrir þér að þú farir. Þegar þú sérð fyrir þér að ferðast til tunglsins muntu ekki óvart lenda á sólinni.