Matar – Æði - námskeið haldið 2.september n.k
Matar – Æði er námskeið sem varpar ljósi á nokkur lykilatriði þegar kemur að því að takast á við mataræðið og þyngdarstjórnun í eitt skipti fyrir öll. Í allri umræðu um þyngdarstjórnun og stjórnleysi í mataræði er lögð mikil áhersla á aðferðir sem virðast ekki gagnast mörgum og hafa litlum árangri skilað þegar á heildina er litið. Á þessu námskeiði er lögð áhersla á nýja nálgun sem leið til þess að þú getir lifað ánægjulegu lífi, sátt/ur við sjálfan þig og mataræðið.
Á námskeiðinu verða 4 lyklar afhjúpaðir sem hafa mikil áhrif á árangur með þyngdarstjórnun og mataræði almennt. Samhliða því verður eftirfarandi spurningum velt upp ásamt ýmsum öðrum atriðum í tengslum við mataræði, hreyfingu og aukakílóin.
- Er eðlilegt að matur stjórni mér?
- Hvað veldur því að ég get ekki staðið við mínar ákvarðanir varðandi mat eða sætindi?
- Af hverju borða ég meira en til stóð, þótt ég sjái oftast eftir því og brjóti mig niður fyrir það?
- Er það skortur á aga sem veldur því að ég næ ekki að léttast eða halda mér í kjörþyngd, eða eru aðrir þættir að hafa áhrif?
- Af hverju hefur ástandið versnað svona mikið á síðustu árum?
- Er það samasemmerki að léttast og að lífið sé hundleiðinlegt og fullt af boðum og bönnum?
- Þarf maður að telja hitaeiningar og vera hungraður alla daga til að viðhalda kjörþyngd?
- Verður maður að æfa stöðugt til að halda sér í kjörþyngd?
- Er einhver einföld leið til að léttast og viðhalda réttri þyngd?
Matar – Æði er hnitmiðað og hressandi námskeið, stútfullt af góðum fréttum fyrir þig. Fyrirlesari er Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi, sem hefur í fjölda ára starfað á heilsutengdu sviði í formi þjálfunar og ráðgjafar í tengslum við mataræði, hreyfingu og fíknitengd vandamál. Valdimar er meðal annars með BA menntun í félagsráðgjöf og einkaþjálfunargráðu.
Námskeiðið er um 1,5 klst og verður haldið þriðjudagskvöldið 2. september klukkan 20:00
Verð 4.900 – takmarkað sætaframboð.
Skráning „HÉR“
Leiðbeinandi: Valdimar Þór Svavarsson
Lausnin.is