Fara í efni

Miðvikudagur og enn lætur sólin ekki sjá sig í Reykjavík, hérna er hugleiðing dagsins frá Guðna

Hugleiðing á miðvikudegi~
Hugleiðing á miðvikudegi~

Verði þinn vilji!

Allt er með vilja gert.

Ekkert er háð viljaleysi eða tilviljunum – enda þýðir orðið tilviljun einfaldlega „að vilja til sín“. Allt er með þínum vilja gert og aðeins tvær leiðir eru færar að þeim vilja – í vitund eða ekki.

Þegar þú velur hvernig næringu þú innbyrðir á hverjum degi stjórnar þú hvernig þér líður, en þegar þú velur ekki næringu í vitund þá stjórnast valið af því hvernig þér líður.

Valkvíði = níska. Valkvíði er ákvörðun um skort og máttleysi – ákvörðun um að lifa í nísku og skammta sér velsæld; ákvörðun um að lifa í skugganum.

Valkvíði er að neita sér um beint vald – að velja að velja ekki og vera þar með fórnarlamb.