Neníta er förðunarmeistari og sýnir okkur hér afar fallega sumarlega förðun
Nenita vinnur í MUD Studio í Garðabæ. Hún notar eingöngu vörur frá MUD.
Nenita er alþjóðlegur Makeup Artist – Förðunarmeistari.
Hún er 36 ára og vinnur einnig sem styrktarþjálfari og yoga kennari.
Hér fer Nenita yfir þær vörur sem hún notaði í þessa förðun.
Ég nota alltaf Primer á andlit fyrst, jafnvel varir ef þess þarf, primerinn nærir og róar húð og er með aloe vera.
Síðan set ég farðann og blanda örlitlum primer til að fá hann léttan og meira “see through” mér finnst það alltaf fallegra svona á daginn og sumrin.
Það er mjög mikilvægt að nota farða daglega, vegna þess að það er oftast sólavörn í honum og við verðum að vernda húðina gegn geislum sólarinnar og líka gegn óhreinindum í loftinu.
Allar vörur eru frá MUD
Á augun valdi ég bleiktóna liti
Ice – Pixie – Chasmere
Brown cake eyeliner
Nýja vatnshelda maskarann okkar
Sumarvaraliturinn okkar er truflaður, fjólublár og gordjöss og hann heitir IDOL
Endingin á honum er ótrúlega löng, hef sett hann á mig í hádeginu, kennt yoga seinnipartinn og kom heim um kvöldið ENNÞÁ með hann á mér, það verða allar/allir að eiga hann í veskinu
Kinnaliturinn heitir Bubblegum og er sjúklega fallega bleikur og skær, það skemmtilega við hann er að það er hægt að ráða hversu skæran lit maður vill hafa
Ég vinn alltaf farða á pallettu með pallettuhníf, vegna þess að hreinlæti er númer 1, 2 og 3.
Ég verð líka að tala aðeins um eyeliner blýantinn með hvítu hárunum, hann er svo guðdómlega góður. Hárin eru fullkomin til að ná fallegum eyeliner. Maður getur stjórnað honum svo rosaleg vel.
Þetta yrði mitt sumar look, fölbleikur augnskuggi, með brúnum eyeliner, sem rammar augun passlega vel inn án þess að vera of áberandi
Hægt er að panta tíma í Workshop hjá mér, en það er persónuleg kennsla í 45 mín, þá hjálpa ég þér að finna rétta farðan, kenni þér létta dagförðun, 5 mínútna förðun eða jafnvel kvöldförðun.
Það skemmtilega við Workshopið er að því fylgir frítt Brush Up, sem er einskonar eftirfylgni þar sem þú kemur aftur til mín og við förum yfir snyrtibudduna og fleira.
Grein frá Neníta Margrét Antonio-Aguilar, Förðunarmeistara.