Njótum spírandi fæðis með öllum mat alla daga - frá Ecospíru
Mynd: Áslaug Snorradóttir, Halldór Steinsson
Njótum spírandi fæðis með öllum mat alla daga.
Hér er ein uppskrift sem heldur líkama okkar ungum og orkumiklum.
Spírandi orkudrykkur:
1 gulrót (2 litlar)
2 lífræn epli ( kjarnhreinsuð)
4 dl vatn
2 msk rifið engifer
4 msk sítrónusafi
1 msk chiafræ
½ tsk mulin söl
Allt sett í blandara og blandað vel saman.
Þá er um 20 g af brokkólíspírum og 25 g af spíraðri prótínblöndu sett útí blandarann og blandað létt saman, ekki of lengi því þá gæti drykkurinn orðið rammur.
Njóta sem fyrst og/eða yfir daginn.
Dásamlegar spírur frá ecospira.is