NOKKRAR STAÐREYNDIR UM SJÁLFSVÍG Á ÍSLANDI
Staðreyndir um sjálfsvíg á Íslandi.
- Sjálfsvíg eru algengasta dánarorsök karlmanna á aldrinum 18 til 25 ára á Íslandi.
- Karlar eru þrisvar til fjórum sinnum líklegri en konur til að taka líf sitt.
- Fjórir til sex ungir karlar taka líf sitt á Íslandi á hverju ári.
- Að meðaltali taka 35 manns líf sitt á Íslandi á hverju ári.
- Ríflega 100 manns eru lagðir inn á sjúkrahús vegna vísvitandi sjálfsskaða á hverju ári.
- Fleiri konur en karlar eru lagðar inn á sjúkrahús vegna vísvitandi sjálfsskaða.
- Alvarleg áföll, vímuefnaneysla, hvatvísi og ýmis konar geðraskanir hafa verið tengd sjálfsvígum.
- Ríflega eitt símtal til Hjálparsíma Rauða krossins 1717 snýst um sjálfsvíg, eigið eða annarra, á hverjum einasta degi allan ársins hring.
- Símtöl til Hjálparsíma Rauða krossins 1717 um sjálfsvíg voru 42% fleiri fyrrihluta ársins 2015 heldur en fyrrihluta ársins 2014.
- Erindum til Hjálparsíma Rauða krossins fjölgaði um 16% á sama tímabili.
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.