Notaðu nefið
Þekkir þú muninn á geymsluþolsmerkingum?
Það eru ekki allir meðvitaðir um það en það eru til tvær gerðir af geymsluþolsmerkingum.
Annars vegar: Síðasti notkunardagur og hinsvegar: Best fyrir‘. Grundvallarmunur er á þessum tveimur geymsluþolsmerkingum.
Aðeins sum matvæli geta orðið hættuleg og þessvegna er þörf á mismunandi merkingum, svo að við sem neytendur getum gert greinamun á milli þess hvort það þurfi að henda matvörunni þegar dagsetningin rennur út eða hvort hægt sé að geyma matinn lengur.
Reglan er sú að mat sem er merktur: Síðasti notkunardagur, (stundum notist eigi síðar) á að henda eftir tiltekna dagsetningu, en matvöru sem merkt er með: Best fyrir, má neyta svo lengi sem hún lyktar og bragðast eðalilega. Því gildir að nota nefið.
Þú sem neytandi getur treyst geymsluþolsmerkingunum á matvörum sem þú kaupir og farið eftir þessari reglu. Margar gerðir matvara eru þannig að þær sumum tilfellum verið merktar með: Síðasta notkunardegi og í öðrum tilfellum með: Best fyrir. Það er háð meðhöndlun og pökkun vörunnar. Þess vegna skaltu fara eftir merkingum á vörunni.
Hvernær er: Best fyrir, notað?
Best fyrir, er notað á matvörur sem geta orðið óspennandi vegna minni gæða, áður en nokkur hætta stafar af vörunni, svo lengi sem varan er rétt geymd.
Hægt er að líta á: Best fyrir, merkinguna sem lágmark fyrir hve lengi matvaran geymist. Sem sagt hve lengi hún heldur fullum gæðum.
Ef varan lyktar og bragðast vel, er sjálfsagt að borða hana. Það sem skiptir máli er að okkur mun þykja þessar vörur of gamlar vegna gæðabreytinga svo sem breytinga á bragði, útliti og lykt áður en þær geta hugsanlega orðið hættulegar. Þess vegna muntu alltaf henda þeim vegna gæða áður en þær gætu mögulega gert þig veikan.
Dæmi um vörur sem merktar eru með: Best fyrir:
- Mjólkurvörur – mjólk, jógurt, sýrður rjómi, rjómi o.s.frv.
- Marmelaði og sultur
- Drykkjarvörur – safi, gos o.s.frv,
- Niðursuðuvörur og matur í krukkum – rauðrófur, sýrðar gúrkur, sardínur í tómat, tómatmauk, hakkaðir tómatar, maís, o.s.frv.
- Kornvörur – (mjöl), haframjöl, hrísgrjón, fræ, múslí, morgunkorn o.s.frv.
- Mjölvörur – hveiti, rúgmjöl, heilhveiti o.s.frv.
Hvenær er: Síðasti notkunardagur, notaður ?
Síðasti notkunardagur, stundum líka, notist eigi síðar, er notaður á matvörur sem geta skapað hættu fyrir heilsu okkar ef þær eru borðaðar eftir, Síðasta notkunardag. Hentu því alltaf matvörum eftir þessa dagsetningu. En mundu að geyma þær rétt fram að því. Ef til dæmis kjötálegg er merkt með: Siðasta notkunardegi, á að henda því í ruslafötuna þegar það eru útrunnið. Ef reyktur eða grafinn
lax er merktur með: Síðasta notkunardegi, á hann að fara í ruslafötuna eftir að dagsetning er útrunnin.
Matvörur merktar með: Síðasta notkunardegi á að henda, því eftir þá dagsetningu getur fjöldi sjúkdómsvaldandi baktería verið orðinn það mikill að þú getur veikst af neyslu þeirra.
Svona meturðu hvort borða megi matinn eftir: Best fyrir
Ef matur er merktur með: Best fyrir getur maður séð á matvörunni hvort hún er orðin of gömul eða skemmd.
- Það getur verið mygla – jafnvel þó aðeins lítill myglublettur sé t.d. á papriku, getur verið að mygluþræðir nái miklu víðar um paprikuna og því er ekki nóg að skera burt myglaða blettinn.
- Rotnun – ef það er komin skemmd til dæmis í paprikuna getur þú skorið hana burt og borðað afganginn.
- Matvæli geta verið mislit, með mismunandi áferð eða orðin vel þroskuð, þetta veldur ekki veikindum.
Þefaðu af matnum. Ef matvæli eru orðin of gömul, geta þau haft óþægilega súra eða þráa lykt. Matvælum sem breytast mikið í útliti og verða ólystug á að henda, yfir leitt fylgir einhver lykt með. Ef maturinn lyktar eðlilega og lítur vel út, geturðu smakkað aðeins á þeim. Ef hann smakkast eðlilega er allt í lagi að borða hann. Ef maturinn bragðast óeðlilega, skaltu henda honum. Mundu að þú verður ekki veikur af því að smakka á honum.
Matvörur án dagsetningar :
Sum matvæli þurfa ekki að vera með dagsetningu, því það er litið svo á að þessar matvörur geti ekki orðið of gamlar. Þessar matvörur eru meðal annars.:
- Tyggigúmmí
- Edik
- Salt
- Sykur
- Drykkjarvörur sem innihalda 10 % alkóhól eða meira
- Vín
Matvörur svo sem heilir ávextir og grænmeti eru heldur ekki dagmerkt, vegna þess að það er nær ómögulegt að meta hve lengi til dæmis epli geymast, því það er mjög háð geymsluaðstæðum. Væru þessi matvæli með dagsetningu er hætta á að þessum matvælum væri hent þó ekkert væri að þeim.
Hvar liggur ábyrgðin þegar þú kaupir mat eftir: Best fyrir?
Það er á ábyrgð verslunar að markaðssetja útrunnar matvörur á þann hátt að það sé greinilegt fyrir þig sem neytanda þegar þú kaupir þær, að þær séu útrunnar. Þetta er hægt að gera með því að hafa útrunnar vörur á ákveðnum stað með skilti með upplýsingum um að varan sé komin fram yfir geymsluþolsdagsetningu. Ef verslun markaðssetur útrunna matvöru, er það á ábyrgð verslunarinnar að matvaran sé neysluhæf. Það á við þann tímapunkt sem varan er seld.
Það er á þína ábyrgð hvort varan er neysluhæf ef þú dregur það að neyta matvælanna, þegar matvaran er seld með það fyrir augum að vera borðuð strax.
Eða ef þú til dæmmis geymir matvöruna í heitum bíl það lengi að hún hitnar. Það er sem sagt á þína ábyrgð að geyma matvörur á
réttan hátt eftir innkaup, og það gerist ekki í heitum bíl.
Góð ráð
Frystu matinn. Þú verður ekki veikur af að borða mat sem hefur verið lengur í frysti en mælt er með. Matvörurnar verða eingöngu lakari að gæðum.
Mundu að viðhafa gott hreinlæti í eldhúsinu, svo að þú styttir ekki geymsluþol matarins.
Ef þú ert í vafa um að kjötið sé ennþá neysluhæft, er oftast í lagi að neyta þess ef þú gegnumsteikir það alveg.
Taktu til dæmis álegg úr umbúðunum og settu það í loftþétt plastbox og lengdu þannig geymsluþolið því þá berast síður í það bakteríur og myglusveppir frá öðrum vörum í ísskápnum.
Hvar geymist maturinn best ?
Það er mismunandi hvar matvörur geymast best , hvort það er í ísskáp, inni í eldhússkáp, á eldhúsborðinu eða á þurrum, dimmum og köldum stað. Hér færðu yfirlit yfir hvar þú ættir að geyma matinn þinn.
Í ísskáp áttu að geyma:
Mjólkurvörur, kjöt- hakkað og heilt, álegg, rótargrænmeti, ferskt pasta, egg, brauð, ferskar kryddjurtir (má einnig frysta), grænmeti, gulrætur, salat, vorlauk, agúrku, kál, engifer, papriku, blaðlauk, hvítlauk og sveppi.
Fylgstu með hitastiginu í ísskápnum. Hitastigið á að vera 4°C eða lægra, þannig er geymsluþol og matvælaöryggi best tryggt.
Í eldhússkápnum ættirðu að geyma:
Matvöru sem er ekki háð hitastigi eins og hrísgrjón, þurrpasta, hveiti, dósamat, sykur, edik og olíu.
Á eldhúsbekknum er gott að geyma:
Tómata, melónu, avokado, banana, kíwí og sítrónur.
Á þurrum, dimmum og svölumstað er gott að geyma:
Kartöflur og lauk.
Áður birt í Húsfreyjunni, timariti Kvenfélagsambands Íslands