Fara í efni

Offitumeðferð - á faglegum og heildrænum nótum til framtíðar

Í samstarfi við Félag fagfólks um offitu (FFO).
Offitumeðferð - á faglegum og heildrænum nótum til framtíðar

Í samstarfi við Félag fagfólks um offitu (FFO).

Offita er ein helsta ógn heilsu mannkynsins í dag. Þær aðferðir sem notaðar hafa verið til forvarna og meðferðar hafa ekki skilað tilætluðum árangri.

Offita er flókið samspil margra þátta og því er samvinna margra fagstétta nauðsynleg til árangurs eins og fjallað verður um á þessu námskeiði.


Fjallað verður um helstu markmið, innihald og árangursmælingar þverfaglegrar offitumeðferðar og hvaða gildi heildræn meðferð við offitu hefur í samanburði við kúra og skyndilausnir. Rætt verður um helstu aðferðirnar í baráttunni við offitu og hvaða langtímaárangri þær eru að skila. Fjallað verður um hvaða meðferðir eru í boði fyrir einstaklinga með offitu á Íslandi í dag og hvert hlutverk heilsugæslunnar í offitumeðferð er.


Á námskeiðinu er fjallað um:

• Árangursríka meðferð við offitu, kosti og galla mismunandi leiða.
• Þau meðferðarúrræði sem í boði eru á Íslandi fyrir fullorðna einstaklinga með offitu.
• 5A, kanadískt meðferðarkerfi við offitu.
• Framtíðarsýnina og gildi þess að semja og fylgja klínískum leiðbeiningum um offitumeðferð.
• Fordóma og gildi sjálfsvirðingar meðal þeirra sem glíma við offitu til að ná árangri og endurheimta heilsu til framtíðar.
• Sýn sjúklingsins og hvernig fagmennska og virðing í samskiptum þarf að haldast hönd í hönd í árangursríkri offitumeðferð.


Ávinningur þinn:

• Að öðlast yfirsýn yfir markmið og innihald þverfaglegrar offitumeðferðar og geta tengt þessa þætti saman sem eina heild.
• Að skilja gildi heildrænnar meðferðar við offitu í samanburði við kúra og skyndilausnir og meta árangur í offitumeðferð.
• Að kynnast helstu aðferðunum í baráttunni við offitu, hvað er í boði á Íslandi og hvaða langtíma árangri skila helstu aðferðirnar.
• Að læra inn á áhrifaríkasta mataræðið og hvaða form hreyfingar virðist henta best.
• Að skilja þátt svefns og hvíldar í tengslum við offitu.
• Að læra að nota 5A á árangursríkan máta.
• Að læra fyrstu skrefin í að opna á samtal við sjúkling sem stríðir við offitu.
• Að þekkja áhrif fordóma og virðingarleysis gegn of feitum einstaklingum og skilja áhrif þess er snýr að sjálfsásökun og vanlíðan einstaklingsins.
• Að fá innsýn í það hvað er að vera offitusjúklingur á Íslandi.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað læknum, hjúkrunarfræðingum, næringarfræðingum, sálfræðingum, sjúkraþjálfurum, íþróttafræðingum og iðjuþjálfum sem og nemum í þessum starfsgreinum.

 

Snemmskráning til og með 1. apríl

Nánari upplýsingar og skráning á endurmenntun.is eða í síma 525 4444