Ómótstæðilegar rjómabollur
Senn rennur bolludagurinn í hlað og hér erum við með ómótstæðilega uppskrift af bollum.
Uppskrift gefur 8 - 10 bollur.
Hráefni:
100 g smjör
2 dl vatn
2 msk sykur (má sleppa)
110 g KORNAX hveiti (rauður poki)
3 stór egg NESBÚ (eða fjögur lítil)
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°C.
Hitið vatn, smjör og sykur saman í potti og látið suðuna koma upp (gott er að láta vatn, sykur og smjör sjóða vel saman í 2 - 3 mínútur áður en hveitið er sett út í). Setjið hveiti út í, hrærið saman og látið kólna í 4 mínútur.Takið pottinn af hitanum og setjið eggin út í eitt í einu, sláið vel saman á milli. Það er líka ágætt að setja deigið í hrærivélaskál og hræra þannig saman. Setjið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað gera það líka með tveimur skeiðum. Bakið bollurnar í 25 – 30 mínútur, það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum því þá er hætta á að bollurnar falli.
Jarðarberjafylling
1 askja jarðarber (10 - 12 stk)
4 dl rjómi
2 tsk. flórsykur
Aðferð:
- Maukið jarðarberin með töfrasprota eða með gaffli.
- Þeytið rjóma og sigtið flórsykur saman við í lokin
- Blandið jarðarberjamaukinu varlega saman við rjómablönduna með sleif.
Nutella - og bananarjómi
Þetta er fyllingin sem þið óskið að taki aldrei enda, hún er of góð til að vera sönn. (en þetta er engu að síður sönn saga)
4 dl rjómi
1 banani
3 msk. Nutella
Aðferð:
- Þeytið rjóma.
- Maukið banana og Nutella saman með töfrasprota eða stappið vel saman með gaffli.
- Blandið bananablöndunna varlega saman við rjómann með sleif.
Uppskrift fengið af síðu evalaufeykjaran.is