Orku pizza með grænmeti, eggi, Tandoori kjúklingi og kotasælusósu
Dásamlegur réttur til að bjóða upp á fyrir alla fjölskylduna.
Réttur er fyrir 4.
Pizza:
4 stk 10" heilhveiti tortillas kökur
400 g eldaðir kjúklingastrimlar
2 msk Tandoori sósa
2 stk spergilkál (450 g)
16 stk kirsuberjatómatar
4 stk harðsoðin egg
4 msk rifin parmesan ostur
1 tsk Maldon salt
Aðferð:
Kryddið kjúklingastrimlana með tandoori sósunni og skiptið jafnt á tortillas kökurnar.
Skerið stilkinn af spergilkálinu og skerið hann síðan í örþunnar sneiðar til dæmis í áleggshníf eða með ostaskera, og leggið í ískalt vatn í um það bil 10 mínútur. skerið toppana af spergilkálinu í fallega bita og steikið snöggt á pönnu og skiptið jafnt á "pizzuna" ásamt kirsuberjatómötunum.
Stráið parmesan ostinum yfir pizzuna og bakið við 180°C í 3-4 mínútur.
Þegar "pizzurnar" eru tilbúnar eru spergilkálstrimlarnir veiddir upp úr vatninu, þeir þerraðir og skipt jafnt á pizzurnar.
Að lokum er sósunni dreift á pizzurnar og þær kryddaðar með smá Maldon salti
Kotasælusósa:
100 g kotasæla
1 msk olífuolía
2 msk saxað ferskt basil
1 tsk salt
Smá pipar
Aðferð:
Öllu blandað saman og skipt jafnt pizzurna.
Höfundar uppskrifta, Steinn Óskar Sigurðsson, matreiðslumaður og liðsmaður í kokkalandsliðinu og
Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur.