RAW Epla orkukúlur – Uppskrift
Það er alltaf gott að eiga hollt og gott „snakk“ til að grípa í eða taka með sér sem millibita til vinnu. Þessar orkukúlur rúllar þú upp á innan við 5 mínútum svo að tímaleysi er enginn afsökun.
Gott að eiga til að grípa í
Það er alltaf gott að eiga hollt og gott „snakk“ til að grípa í eða taka með sér sem millibita til vinnu.
Þessar orkukúlur rúllar þú upp á innan við 5 mínútum svo að tímaleysi er enginn afsökun.
Hráefni
- 1 ½ bolli þurrkuð epli
- ¼ bolli döðlur (steinlausar)
- ½ msk hunang (eða annað sætuefni)
- 1 tsk nutmeg
- 2 msk kanill
- ¼ bolli af ristuðum pekanhnetum
Aðferð
Byrja á að setja eplin, döðlurnar og hunangið í matvinnsluvél eða góðan blandara og unnið vel saman. Síðan er nutmeg, kanill og pekanhnetum bætt við og unnið þar til að hneturnar hafa brotnað niður í hæfilega stærð fyrir hvern og einn. Þegar blandan er tilbúin er best að taka matskeið og rúlla þessu á milli handanna og kannski betra að væta aðeins hendurnar með vatni svo að þetta festist ekki við þig. Sett í hæfilegt ílát og þú getur geymt þetta uppundir eina viku í ísskápnum.
Tengt efni:
- RAW - Pekandjúpur
- Banana snakk með hemp fræjum og hnetusmjöri– raw vegan
- Raw súkkulaði-rasberry brúnkökubitar
- RAW Kókós „Bliss“ kúlur