Regnbogaspaghetti frá Mæðgunum
Það er eitthvað við þessa björtu sumardaga sem kallar fram löngun í litríkan og ferskan mat hjá okkur mæðgum.
Grænmetisspaghetti er einn af þessum réttum sem okkur finnst svo góðir á sumrin. Við gerðum ljúffenga útgáfu um daginn og notuðum allt litríkasta grænmetið sem við fundum.
Með svona fersku "pasta" finnst okkur nauðsynlegt að hafa kremaða og góða sósu, í þetta sinn skelltum við í dásamlega avókadósósu og toppuðum með hnetukurli. Regnbogapasta er gott sem léttur aðalréttur, eða sem meðlæti t.d. með grillmatnum.
Krökkunum í okkar fjölskyldu finnst gaman að borða grænmetið svona í ræmum, en vilja ekki sósuna og þá er ekkert mál að bera sósuna fram til hliðar.
Grænmetisspaghetti
2 gulrætur
2 fjólubláar gulrætur
2 röndóttar rauðrófur
1 kúrbítur
- Breytið grænmetinu í spaghetti með því að nota mandolin, spiralizer eða annað sniðugt tól
- Setjið avókadósósu og heslihnetukurl út á og toppið með næringargeri, ef vill.
Avókadósósa
1 búnt ferskur kóríander
½ búnt steinselja
4 hvítlauksrif
1 dl sítrónusafi
1 ½ dl jómfrúar ólífuolía
1 tsk sjávarsaltflögur
1 tsk paprikuduft
½ tsk cuminduft
smá cayenne pipar
1 avókadó
- Setjið allt í blandara nema avókadóið og blandið vel.
- Bætið svo avókadóinu út í og klárið að blanda.
Heslihnetukurl
½ dl heslihnetuflögur
½ dl kasjúhnetur, saxaðar
- Þurristið í ofni, kælið og setjið í krukku.
Efst
2 msk næringarger, stráið yfir eins miklu og ykkur finnst gott.
Njótið
Af vef maedgurnar.is