Fara í efni

Reynt að fjölga líffæragjöfum hér á landi

Látnir líffæragjafar, hér á landi, eru tveir til sex á ári. Flestir þeir sem gefa líffæri látast úr heilablæðingu.
Reynt að fjölga líffæragjöfum hér á landi

Látnir líffæragjafar, hér á landi, eru tveir til sex á ári. Flestir þeir sem gefa líffæri látast úr heilablæðingu.

Talið er að 25 til 30 manns þurfi á gjafalíffærum að halda á hverju ári.

Menn hafa mikið velt fyrir sér leiðum til að fjölga líffæragjöfum. Liður í því er að breyta lögum um brottnám líffæra úr látnum einstaklingum.

Þingmenn úr öllum flokkum hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem felur í sér, verði það að lögum, að nema megi brott líffæri úr líkama látins einstaklings hafi sá hinn sami ekki lýst sig andvígan því.

Ekki má þó nema brott líffæri úr látnu fólki leggist nánustu vandamenn gegn því. Sambærileg frumvörp hafa áður verið lögð fram á þingi en ekki náð fram að ganga.

Eins og staðan er í dag verður hinn látni að hafa samþykkt að gefa líffæri sín að sér gengnum eða að hans nánustu ættingjar verða að samþykkja líffæragjöfina.

Hægt er að fara inn á vef Landlæknisembættisins og skrá afstöðu viðkomandi til líffæragjafa.

 Fáir líffæragjafar á Íslandi...LESA MEIRA