#RÍSUMUPP gegn andlegu og líkamlegu ofbeldi - Stelpa.is
Hvorki andlegt né líkamlegt ofbeldi, umsátur á samfélagsmiðlum, einelti eða annar viðbjóður skal sitja hjá þeim sem fyrir því verður. Stelpa.is segir #RÍSUMUPP gegn ofbeldisfólki og köstum ábyrgðinni og skömminni yfir á gerendur. Við fáum ótal bréf frá lesendum sem orðið hafa fyrir ofbeldi eða áreiti hvers konar og síga niður undan þunga högganna.
Linda Björg Björnsdóttir, talskona #RÍSUMUPP fyrir Stelpa.is, hefur þetta að segja:
Ég ætla taka mitt fyrsta skref í að taka stjórnina aftur á mínu eigin lífi og stíga útúr þögninni !! Mér var nauðgað af 2 mönnum og vegna ótal ástæðna og mest megnis hræðslu hef ég verið í þögninni. Ekki lengur ! Nú tek ég stjórnina af gerundunum og rís upp !!
Þetta er versta lífsreynsla sem ég hef þurft að ganga í gegnum, og þetta hefur gjörsamlega stjórnað lífinu mínu sl. 3 og hálft ár. Þetta er barátta sem ég mun þurfa að berjast í gegnum allt mitt líf, en það sem ég ætla að gera núna í dag er að taka stjórnina frá þeim og yfir í mínar hendur.
ÞEIR FÁ EKKI AÐ STJÓRNA MÍNU LÍFI LENGUR !
#RÍSUMUPP gegn andlegu og líkamlegu ofbeldi og áreiti hvers konar
Stöndum saman og #RÍSUMUPP. Segjum frá um leið og köstum frá okkur skömminni sem er ekki okkar. Sendu okkur þína hetjusögu, undir nafni, og við birtum hana hér á Stelpa.is, öðrum til hvatningar. Segðu okkur hvað gerðist, hvernig þér leið og hvernig þú tókst á við aðstæður. Sendu okkur mynd ef rafræn samskipti áttu sér stað og drögum gerendur fram í dagsljósið.
- Taktu engan þátt í neinum rökræðum; biddu viðkomandi um að hætta
- Taktu mynd ef um rafræn samskipti er að ræða og ekki svara neinu eftir fyrstu beiðni um að hætta áreiti
- Segðu alltaf frá, sama hversu erfitt og sama hversu hrædd eða hræddur þú ert
- #RÍSUMUPP alltaf
- Leitaðu aðstoðar á viðeigandi stöðum og ekki gefast upp