Fara í efni

Sá sem flýgur hátt - Guðni og hugleiðing dagsins

Sá sem flýgur hátt - Guðni og hugleiðing dagsins

Uppinn og niðrinn

Uppinn er sá sem flýgur hátt og berst mikið á í peningum og efnislegum gæðum. Niðrinn er róninn, útigangsmaðurinn sem hefur rýrt sig nægilega mikið til að ná alla leið niður á botn.

Hvor þeirra er fjær sjálfum sér?

Þeir eru á sama stað, því það sem er hátt fyrir ofan daglegt líf er langt fyrir neðan það á sama tíma.

Uppinn býr á hæðinni, á flotta stóra húsið og keyrir um á stórum sportjeppa, róninn býr í ræsinu og á engan samastað, en það sem sameinar þá er að báðir nota þeir rakspíra – róninn drekkur hann en uppinn úðar honum á sig. Báðir eru jafn fjarverandi, báðir í sinni neyslu, uppinn upptekinn af því að lifa hratt í veraldlegum gæðum og róninn upptekinn við að flýja velsældina, staðnaður í ræsinu, kominn á botninn.