Sesam tamari kjötbollur
Frábærar öðruvísi kjötbollur frá Ljómandi.
Frábærar öðruvísi kjötbollur frá Ljómandi.
Uppskrift er fyrir 4.
Kjötbollur: / 450 g nautahakk / 2 vorlaukar / 1 stórt egg / 1/4 bolli brauðteningar / 3 msk kóríanderlauf / 1 msk tamarisósa / 2 tsk ristuð sesamolía / 1 tsk ferskt rifið engifer / smá himalayan salt / smá svartur mulinn pipar.
- Hitið ofninn í 200-220 gr.
- Saxið laukinn gróft niður, pískið eggið létt, saxið kóríanderlaufin smátt og rífið engiferið niður.
- Setjið nautahakkið í stóra skál ásamt lauknum, egginu, brauðteningunum (bara rista brauð og skera smátt), kóríanderlaufunum, tamarisósunni, sesamolíunni, engiferinu, saltinu og piparnum og blandið öllu vel saman.
- Notið hendurnar til að búa til kjötbollur.
- Setjið bollurnar á bökunarpappír í ofnskúffu eða í eldfast mót og inn í ofn í ca. 15-20 mínútur eða þar til þær eru gullnar og að fullu eldaðar. Eldunartíminn fer auðvitað eftir því hversu stórar þið viljið hafa bollurnar en þessi uppskrift miðast við ca. 12 bollur.
- Gott að bera fram með fetaosti, sultuðum rauðlauk, sultu og hvítlauksbrauði.
Rauðrófu- og elpasalat: / 1 rauðrófa / 2 lífræn epli / safi úr hálfri lime eða sítrónu / 1-2 cm rifið engifer / smá sesamfræ / ólífuolía / salt.
- Rífið rauðrófuna og eplin niður.
- Ágætt er að láta rauðrófurnar liggja aðeins í sítrónusafanum áður en öllu er blandað saman því þá mýkjast þær smá.
- Síðan er hægt að bæta hverju sem er útí eins og sellerí, kóríander, zukkini eða bara hverju sem er.
Uppskrift frá ljomandi.is