Fara í efni

Skarlatsótt sækir í sig veðrið á Englandi

Skarlatsótt orsakakar áberandi rauð-bleik útbrot.
áberandi rauð-bleik útbrot
áberandi rauð-bleik útbrot

Skarlatsótt orsakakar áberandi rauð-bleik útbrot.

Fleiri en 3,500 börn hafa greinst með skarlatsótt á Englandi frá því í september í fyrra. En þetta kemur fram í The Daily Telegraph.

Fréttinni fylgir viðvörun frá public health officials um að þetta  hafi ekki sést síðan 1990.

Greinst hafa 3.548 börn með sjúkdóminn síðan í september 2013. þetta er miklu meira en hafið verið reiknað með. Því síðast liðin 10 ár hafa ekki nema 1,420 mál komið upp.

s

En hvað er skarlatsótt?

Skarlatsótt orsakast af bakteríu og lýsir sér þannig að rauð-bleik útbrot myndast um líkmann. Útbrotin minna helst á sandpappír því ef þú stríkur yfir þau þá eru þau afar gróf og þurr.

Útbrotin byrja á einum stað og afar fljótlega breiðast um líkamann, á eyrun, háls og brjóst. Þessu fylgir kláði.

Allir geta fengið skarlatsótt en yfirleitt eru það börn á aldrinum tveggja til átta ára sem veikjast af henni.

Skarlatsótt er afar smitandi og hún smitast á þennan hátt:

-         þú getur andað að þér bakteríunni ef einhver sem hefur hana hnerrar eða hóstar.

-         Snerting við húð á manneskju sem er með útbrot.

-         Með því að nota handklæði, föt eða sængurföt manneskju sem er smituð.

Hvað á að gera ef þú heldur að barnið þitt sé smitað?

Farðu strax til heimilislæknis. Það er mjög mikilvægt!

Meðferðin:

Það eru 10 dagar á sýklalyfjum.

Hitinn hverfur vanalega á sólarhring um leið og sýklalyfin eru farin að virka og önnur einkenni á nokkrum dögum.

Það verður að klára meðferðina, alla 10 dagana á sýklalyfjum og það er afar mikilvægt.

Lesa má meira um skarlatsótt HÉR.

Scarlet fever reports more than double average. The Daily Telegraph, March 21 2014

Scarlet fever: Sharp rise in cases since Christmas. BBC News, March 21 2014

Heimildir: nhs.uk