Sólríkt sumarsalat með ferskjum frá Food & Good
Hamingja í hverjum bita.
Hamingja í hverjum bita.
Hráefni:
Grænt kál, skorið niður
Kúrbítur, spaghettílengjur
Gúrka, skorin í litla teninga
Rauðkál, skorið smátt
Ferskjur, skornar í báta
Hunang
1/2 lime, safinn
1/2 sítróna safinn
Skerið rauðkálið smátt og setjið í skál. Bætið saman við hunangi, limesafa og sítrónusafa. Marinerið í 2 - 3 klst.
Skerið kálið og gúrkuna og setjið í skál. Setjið næst kúrbítinn ofan á og síðan rauðkálið. Setjið ferskjubátana útá salatið. Þetta salat er frábært eitt og sér eða með fiski eða kjöti.
Njótið dagsins!
Uppskrift af síðu foodandgood.is á Facebook.