Fara í efni

Styrktarganga Göngum saman 2015 fer fram á mæðradaginn, sunnudaginn 10. maí

Gengið verður á 15 stöðum um allt land.
Styrktarganga Göngum saman 2015 fer fram á mæðradaginn, sunnudaginn 10. maí

Ætlar þú að ganga á sunnudaginn? 

Gengið verður á 15 stöðum um allt  land: 

 

BorgarnesiStykkishólmiPatreksfirðiÍsafirðiHvammstanga,SiglufirðiAkureyri

VopnafirðiEgilsstöðumNeskaupstaðFáskrúðsfirðiHöfnVestmannaeyjarSelfossi og Reykjavík.

Til að sjá nánari upplýsingar um hvern göngustað skal tvíklikka á staðarheiti hér að ofan.

Göngustaðir Mæðradagsgöngu Göngum saman í maí 2015

 

Á öllum stöðum er nú unnið að undirbúningi göngunnar og vonast er eftir metþátttöku. Gangan er gjaldfrjáls en göngufólki gefst kostur á að styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini, með frjálsum framlögum eða með því að festa kaup á varningi Göngum saman. Í ár verða meðal annars seldir bolir og höfuðklútar sem hannaðir voru sérstaklega fyrir félagið af Jör og margnota innkaupapokar hannaðir af Sigurborgu Stefánsdóttur. Lagt verður af stað kl. 11.

 

Kíkið á síðu göngum saman ef þið viljið styrkja félagið.