Suðrænt saltfisksalat
Hér er einfaldur og jafnframt sérlega ljúffengur forréttur sem slær alltaf í gegn.
Þessi uppskrift er fyrir 6 manns.
Hráefni:
Sérútvatnaður saltfiskur frá Ektafiski, 800 – 1.000 gr. (má einnig vera útvatnaður)
Sólþurrkaðir tómatar í olíu
Grænar ólífur m/papríku
Svartur pipar
Valkvætt: Kapers, blaðlaukur og steinselja
Dressing:
Majones
Sýrður rjómi
Appelsínuþykkni
Saltfiskurinn er settur í pott og hitaður þar til suðan kemur upp. Leyfið
fisknum að kólna örlítið. Allt skorið svo og saxað og blandað saman í skál.
Notið olíuna af tómötunum og bætið við ólífuolíu ef þarf. Fínt að láta salatið
jafna sig í ísskáp í 1-2 klukkutíma áður en það er borið fram.
Blandið saman majonesinu og sýrða rjómanum í aðra skál, helming á móti helmingi,
og bætið appelsínuþykkninu út í eftir smekk. Fínt að hafa appelsínubragðið
frekar ákveðið.
Borið fram með baguette brauði.
Bon appétit!
Uppskrift frá strákunum hjá Ektafisk á Hauganesi.