Það eru aðeins tækifæri í þessari tilvist - hugleiðing 3.janúar 2015
Veldu að mæta í fulla birtingu sálar þinnar.
Þú þarft engar áhengjur, enga hvata, engar gulrætur eða kaup kaups. Þér dugar að opna faðminn til að þiggja og opna hjarta þitt til að gefa.
Þér dugar faðmlag – því hvað er faðmlag annað en tvö hjörtu sem leggjast upp að hvort öðru? Það eru aðeins tækifæri í þessari tilvist, engin vandamál, aðeins þjáning sem stafar af viðnámi sem við höfum mátt til að stöðva.