Þessi 10 áhugamál örva heilann og munu gera þig gáfaðri
Það virðist sem almennur skilningur sé á því að það er ekki margt sem við getum gert til að auka á gáfurnar.
Það er eins og fólk trúi því að hvort sem þú ert gáfaður eða ekki að það hafi verið ákveðið við fæðingu og þú getur ekkert gert til að breyta því.
Hins vegar, þá eru þetta allt saman ranghugmyndir. Þó sumir haldi að þeir séu þeim skilyrðum háðir að geta ekki aukið á gáfur sínar þá eru ótal hlutir sem hægt er að gera til þess eins að auka þær.
Hér fyrir neðan er upptalning á því sem getur hjálpað flest öllum að auka á gáfur og virkja heilann betur. Öll þessi atriði hafa verið rannsökuð vísindalega ásamt því sem að tilraunir voru gerðar og eru þessar ráðleggingar því studdar af vísindageiranum.
1. Að spila á hjóðfæri
Confucious sagði fyrir löngu síðan að tónlist dregur fram allskyns ánægju sem mannkynið getur ekki verið án. Tónlist örvar heilann og hefur þetta einnig verið staðfest með rannsóknum.
Tónlist hefur þau áhrif að vekja upp flóknar tilfinningar. Margir vísindamenn hafa sýnt fram á að það eitt að hlusta á tónlist eða spila á hljóðfæri geti aukið á afkastagetu minnis.
Að spila á hljóðfæri kennir þér einnig þolinmæði því það tekur tíma að læra. Einnig skerpir þetta einbeitinguna.
2. Að lesa mikið
Að lesa er afar gott fyrir gáfurnar en það þarf að lesa allskyns bækur, skáldverk, ævisögur og allskyns safnrit.
Lestur dregur úr stressi, gefur þér tækifæri á að upplifa allskyns tilfinningar og í leiðinni kennir þér eitt og annað um það sem þú ert að lesa.
3. Regluleg hugleiðsla
Ávinningur þess að hugleiða er að hjálpa þér að einbeita þér að þínu innra sjálfi. Hugleiðsla dregur einnig úr stressi og fjarlægir allskyns óþarfa áhyggjur.
Þegar hugurinn er í ró eftir hugleiðslu þá áttu mikið betra með að læra, hugsa og plana hluti.
4. Æfingar fyrir heilann
Það þarf að æfa heilann alveg eins og líkamann til að hann sé í góðu formi, þ.e heilinn. Gott er að ögra heilanum með því að gera nýja hluti sem auka á getu hans til að halda þér skörpum.
Það er hægt að æfa heilann á marga vegu. Má nefna t.d sudoku, pússluspil, borðspil og gátur. Allt þetta hjálpar heilanum að mynda ný tengsl.
5. Hreyfðu þig oft
Heilbrigður líkami stuðlar að heilbrigðum heila. Því eftir allt saman þá er heilinn eins og hver annar vöðvi í líkamanum. Að hreyfa sig reglulega gerir það að verkum að heili og líkami virka rétt. Einnig dregur hreyfing úr spennu og þú sefur betur.
Læknar eru sammála um að þeim mun betra blóðstreymi til heila þeim mun betur virkar hann.
6. Lærðu nýtt tungumál
Að læra nýtt tungumál er ekki alltaf auðvelt verkefni en þú getur verið viss um að það virkjar heilann betur og eykur á gáfurnar.
Þeir sem tala fleiri en eitt tungumál eru oftar en ekki betri í að leysa vandamál og taka mikilvægar ákvarðanir.
7. Skrifaðu niður þínar tilfinningar
Það er mikill ávinningur í því að skrifa, t.d eykur það á gáfurnar. En skriftir hjálpa þér einnig að einbeita þér betur, ímyndunaraflið verður frjórra og sköpunargáfan eykst.
Rithöfundar eru yfirleitt taldir til gáfumanna. Það má skrifa eitt og annað. Þú getur skrifað dagbók, stuttar sögur eða ljóð sem dæmi.
8. Ferðast á ókunnugar slóðir
Að ferðast er ekki bara leið til að drepa tímann ef þér leiðist. Ferðalög geta svo sannarlega aukið á gáfurnar.
Þegar þú ert að ferðast þá þarftu að hafa margt í huga varðandi ókunnugar slóðir og þetta fær þig til að losa um allt stress. Þegar stressið er farið þá getur þú einbeitt þér að því sem er í kringum þig. Nýtt tungumál, nýtt land, nýtt landslag og framandi matur.
9. Eldaðu allskyns mat
Ansi mörgum leiðist að elda og finnst það vera tímasóun og allt of margir forðast það að elda.
En í stað þess að sitja og væla yfir eldamennskunni þá áttu að vera full af hamingju þegar tækifæri gefst til að elda. Að elda á hverjum degi allskyns rétti og prufa alltaf eitthvað nýtt eykur á sköpunargáfuna.
Einnig þegar þú ert að elda þá lærir þú að gera marga hluti í einu og skipuleggja þig betur.
10. Taktu þátt í íþróttum
Að taka reglulega þátt í einhverskonar íþróttum gerir ekki einungis líkamanum gott heldur kveikir þessi hreyfing á heilasellunum. Allskyns hópíþróttir eru mjög góðar í þessum skilningi.
Af vef awesometips.pw og HÉR getur þú lesið meira um það hvernig þú getur bætt þínar gáfur.