Eitt mest krefjandi útihlaup ársins fer fram um helgina, Bakgarðurinn og því ekki úr vegi að fara yfir búnaðinn. Hlaupár tók saman það helsta sem þarf.
UGLOW Ultra hlaupajakki
Þessi jakki verður besti vinur þinn á blautum hlaupadögum, þriggja laga og bæði vind- og regnheldur. Hann er léttur og sveigjanlegur og framleiddur með UltraSonic- StitchFree tækni svo hann blotnar ekki í gegn á saumum.
JOHAUG Concept buxur
Þessar eru ný og uppfærð útfærsla af Concept buxunum og koma nú hærri í mittið. Buxurnar eru vindheldar framan á lærum, mjúkar og teygjanlegar og frábærar í útihlaup og göngur og á gönguskíðin í vetur.
HOKA skór Speedgoat 6
HOKA skórnir eru þekktir fyrir einstaka mýkt og dempun og þessir eru þar engin undantekning. Frábærir skór í utanvegahlaup með góðri öndun, mikla dempun og einstakt grip.
PETZL Swift höfuðljós
Höfuðljós er skyldueign hlaupara og útivistarfólks, sérstaklega hér á landi þar sem dagsbirtan er af skornum skammti stóran hluta árs. Þetta ljós er létt en gríðarleg öflugt með sjálfvirkum ljósnema sem stillir geislann og ljósmagnið miðað við aðstæður til að spara orku en einnig er hægt að stilla handvirkt.
UGLOW vatnsheldir vettlingar
Frábær vatns- og vindheld skel til að nota yfir aðra vettlinga en þessir hafa sömu vatnsheldni og bestu jakkarnir frá UGLOW.
RIDGE MERINO Lambhúshetta
Lambhúshettur eru nauðsynlegar í íslensk útihlaup og þessi er frábær og mjúk úr merino ull sem leggst vel að höfðinu. Að framan er net til að auka loftflæðið.
ULTIMATE DIRECTION Ultra hlaupavesti
Þessi hlaupavesti hafa hlotið frábæra dóma og eru í flokki þeirra allra bestu á vefsíðum sem bera saman slíkan búnað. Efnið er lipurt, teygist á fjóra vegu og með vösum fyrir brúsa og síma.
Sýnileikavesti
Góður sýnileiki er nauðsynlegur þegar hlaupið er úti á öllum tímum sólarhringsins. Þetta vesti hentar líka í hjólreiðarnar og alla útivist og hægt að stilla stærðina.
KAHTOOLA EXOspike hlaupabroddar
Þessir eru frábærir í utanvegahlaup og göngur. Tólf karbítnaglar eru á hvorum brodda og þessir hafa verið prófaðir í aðstæðum við -30 gráður.
Precision gel 30
Það má ekki gleyma að næra sig á löngum hlaupum og gelið frá Precision inniheldur 30 grömm af kolvetnum eða 120 kaloríur. Þau fara vel í maga og klístrast ekki í munninum og eru með mildu, hlutlausu "Orginal/sítrus" bragði.