Fara í efni

Þú ert skapari - hugleiðing frá Guðna

Hugleiðing á fimmtudegi.
Þú ert skapari - hugleiðing frá Guðna

Þú ert skapari

Þú ert skapari og lífið streymir um þig. Þú ert fær um að leyfa fólki, hlutum og aðstæðum að vera eins og það er á þessari stundu, því þú veist að allt laðar að sér og skapar á sinn hátt.

Samkvæmt lögmálum alheimsins er allt sem er gert eða hugsað í fullkomnum samhljómi og þú átt núna heima í varanlegu algleymi – upplýstur; logandi.

Er þetta yfirdrifið? Finnst þér þetta of mikið? Of væmið? Of nýaldarlegt? Of ... eitthvað?
Af hverju?

Geturðu sagt við hjarta þitt að heiðlóan sé falleg vera og að líf hennar sé einstakt, jafnvel heilagt?

Geturðu fundið brosið fæðast framan í þér og heitan straum í brjóstinu þegar þú fylgist með litlum kettlingi fóta sig í fyrsta skipti?

Við getum það öll.

En viltu það? Hefurðu heimild til þess?