Undirbúningsnámskeið - Reykjavíkurmaraþonið 2014
SKRÁNIG HÉR
16 vikna undirbúningsnámskeið hefst 5. maí.
Hver og einn setur sér tímamarkmið til að stefna að í hlaupinu. Sett er upp þjáfunaráætlun í samræmi við markmið. Vikuleg æfingaáætlun er gerð fyrir þátttakendur. Fastar sameiginlegar æfingar eru þrisvar í viku undir leiðsögn en að öðru leyti fer hver og einn eftir gerðri áætlun.
Áhesla er lögð á þjálfun allra helstu þátta, svo sem grunnþol, hraða, hraðaúthald, styrk, liðleika, og andlegan styrk auk þess sem unnið er í þjálfunni með púls til að ná fram sem bestum gæðum.
Stigvaxandi æfingaálag og ákefð sem þú ræður við og fjölbreytni æfinga eykur líkurnar á hægum jöfnum framförum og eykur ennfremur líkurnar á hámarksárangri í Reykjavíkur maraþoninu.
Verð námskeiðs: Mánaðargjald kr. 8.000-, 4 mánuðir (16 vikur) fram að maraþoni. Ef greitt er í einu lagi fyrir 15. maí kr. 24.000- (mánaðargjald kr. 6.000-)