Við erum stöðugt að tjá okkur, opinbera okkur og segja umhverfinu hversu verðug við erum, orð frá Guðna á miðvikudegi
Hugleiðing á miðvikudegi~
Umgjörðin er þetta og margt fleira. Og það er ekkert mál að búa hana til og viðhalda henni þegar þú hefur tekið ákvörðun – þegar þú hefur heitbundið þig velsældinni.
Við erum stöðugt að tjá okkur, opinbera okkur og segja umhverfinu hversu verðug við erum.
Breytingin snýst um að birtast í nýrri umgjörð út frá nýjum forsendum – að heitbinda sig breyttu viðhorfi til næringar, því að þá kemur heimurinn til hjálpar.
„Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir.“ Var þetta það sem átt var við?
Vissulega er vitað að trúin flytur fjöll, en skynsamar manneskjur hafa ráðlagt okkur að taka samt með okkur skóflu. Umgjörðin er ferli til velsældar.