Fara í efni

Við hvaða skilyrði verðum við þakklát - Guðni með hugleiðingu dagsins

Við hvaða skilyrði verðum við þakklát - Guðni með hugleiðingu dagsins

Dómurinn yfirgnæfir þakklætið

En við hvaða skilyrði verðum við þakklát?

Hvenær finnum við fyrir þakklæti og sýnum það? Gerist það af skyldurækni?

Þakklæti er að velja að sjá lífið sem blessun – þegar þú telur blessanir þínar og þakkar fyrir reynsluna sem mótlætið færir þér. Þakklæti verður á því augnabliki þegar þú leyfir öllu að vera eins og það er – þú finnur eins mikið og hjartað leyfir.

Þeir sem eru ekki í tengingu við hjartað geta aldrei fundið fyrir þakklæti – þeir geta hugsað um það, talað um það, verið kurteisir, jafnvel sýnt vinsemd í gjörðum, en þeir finna ekki fyrir þakklæti fyrr en þeir leyfa öllu að vera eins og það er.