Við viljum temja okkur sjálf, hugleiðing frá Guðna á föstudegi
Hugleiðing á föstudegi~
Við viljum temja okkur sjálf, eða öllu heldur temja okkur ný vinnubrögð, ný viðhorf, nýjan lífsstíl sem byggir á velsæld og valdi yfir eigin lífi og viðbrögðum.
Við viljum temja okkur í fullum kærleika og heimild; ekki í ógn og refsingu heldur aga sem lýsir skæru ljósi og stað festir ást á eigin tilveru.