Nú verður hlaupið alla leið
Newton Running á Íslandi kynnir 11. Víðavangshlauparöð Framfara.
Hlaupin eru fjögur og með sama sniði og undanfarin ár, hefjast kl. 11:00 á laugardagsmorgnum í október og nóvember.
Um tvær vegalengdir er að ræða, “stutt” og “langt” hlaup, og hefst styttra hlaupið á undan. Stutta hlaupið er yfirleitt um 700-800m og það langa 4-7.5km.
Keppnisgjald er 500kr en ókeypis fyrir börn undir 12 ára aldri.
Eftirfarandi eru staðsetningar og dagsetningar:
- 4.október - Rauðavatn
- 11.október - Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar í Fossvogi
- 1.október - Vífilsstaðatún
- 8.nóvember - Borgarspítali
Stigakeppni er í flokkum karla og kvenna og veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá einstaklinga í stigakeppninni að hlaupunum loknum. Þáttakendur mega og eru hvattir til að taka þátt í báðum hlaupum á sama degi. Bæði hlaup á gefnum degi gilda til stiga einstaklings í stigakeppninni en aðeins þrír bestu keppnisdagar gilda í lokin. Þannig er óhætt að forfallast í einu hlaupi án þess að heltast úr lestinni í stigakeppninni.
Kort og lýsingar á brautum fara hér á eftir:
Hlaup 1, Rauðavatn, 4.október:
Hringurinn er 950m að lengd og alfarið á malarstígum. Talsvert um brekkur, nokkuð um tæknilegt einstigi, gljúpur hestastígur. Ekki er mælt með að hlaupa á gaddaskóm.
Hlaupinn er 1 hringur (1km) í stutta hlaupinu en 4 (4km) í því langa.
Bílastæði eru við Elliðavatnsbæ.
Hringur:
Til að komast á staðinn:
Myndin sýnir legu brautar miðað við austurenda Rauðavatns og Olís Norðlingaholti, þar sem mælt er að nýta bílastæðin andspænis bensínstöðinni.
Hlaup 2 – Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar í Fossvogi – 11.október
Hringurinn er um 900m að lengd, á malarstígum og moldarslóðum innan lands Ræktunarstöðvarinnar. Brautin er ekki mjög tæknileg, undirlag er mestmegnis slétt og hörð möl. Ekki er mælt með að hlaupa á gaddaskóm. Hlaupnir eru 1 hringur (900m) í stutta hlaupinu og 5 hringir (4.5km) í því langa.
Braut:
Hlaup 3 - Vífilsstaðatún, 1.nóvember
Hringurinn er 1.1km að lengd, tæknilegur og með talsverðri hækkun. Hlaupið er á grasi. Mælt er með að hlaupa á gaddaskóm. Hlaupinn er 1 hringur (1.1km) í stutta hlaupinu en 5 hringir (5.5km) í því langa.
Bílastæði við Vífilsstaði.
Hlaup 4, Borgarspítali, 8.nóvember
Hringurinn er 1km að lengd, tæknilegur, hæðóttur og á köflum mýrlendur. Hægt er að hlaupa í gaddaskóm. Hlaupinn er 1 hringur (1.1km) í stutta hlaupinu en 6 (6.6km) í því langa.
Bílastæði eru við spítalann.