Viltu hætta að reykja? Reykbindindisnámskeið 1. febrúar
Krabbameinsfélag Reykjavíkur býður upp á reykleysisnámskeið í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar að Skógarhlíð 8, 1. hæð.
Námskeiðið hefst mánudaginn 1. febrúar 2016 kl. 17:00-18:00. Leiðbeinandi er Ingibjörg K. Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur.
1. fundur: Mánudaginn 1. febrúar kl. 17:00-18:00. Undirbúningsfundur.
2. fundur: Mánudaginn 8. febrúar kl. 17:00-18:00. Undirbúningsfundur.
3. fundur: Mánudaginn 15. febrúar kl.17.00-18.00. Allir hættir að reykja.
4. fundur: Fimmtudaginn 18. febrúar kl. 17:00-18:00.
5. fundur: Mánudaginn 22. febrúar kl. 17:00-18:00.
6. fundur: Mánudaginn 29. febrúar kl. 17:00-18:00.
7. fundur: Mánudaginn 14. mars kl. 17:00-18:00.
8. fundur: Mánudaginn 23. maí 2016 kl. 17:00-18:00. Endurfundir.
Fyrir marga er mikið mál að hætta að reykja og marklaust að gera slíkt með hálfum huga. Því betur sem menn sækja fundina þeim mun meiri líkur eru á að þeir hætti að reykja. Fylgja á leiðbeiningum um undirbúning. Á meðan námskeið stendur og að því loknu geta þátttakendur fengið einkaviðtöl við leiðbeinanda.
Skráning á reykleysi@krabb.is eða í síma 540 1900. Þátttökugjald er 15.000 kr.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar eru á vefsíðunni krabb.is/reykleysi
Af síðu krabb.is