Viltu hvítari og hraustlegri neglur?
Tískan í naglalökkum.
Hvítari neglur
Naglalakka tískan hefur nú ekki farið framhjá neinum. En litagleði eru enn við völd í dag í naglatískunni og litirnir fara að dökkna með lækkandi sól. Þegar við notum mikið litað naglalakk þá eiga neglurnar til að gulna og það á líka við um táneglurnar.
Við fundum snilldar lakk frá Alessandro sem heitir Pro white original. Þetta lakk má nota eitt og sér eða sem undirlakk. Virknin er sú að það minnkar gula litinn í nöglunum. Þetta lakk er líka algjör snilld ef þú ert með akrýl neglur eða gel neglur því þá virka þær enn hvítari og fallegri. Stundum vill maður náttúrulegt útlit á neglurnar inn á milli og þetta er ein leið til að gera það fullkomið.
Alessandro fæst í öllum helstu lyfjaverslunum, stórmörkuðum og snyrtivöruverslunum landsins.
Heimild: tiska.is