Vinnustofa í Núvitund: Leitaðu inn á við – byggt á Google námskeiði um núvitund og tilfinningagreind
Núvitund – leitaðu inn á við er 2ja daga vinnustofa og eftirfylgnitími 2 vikum síðar, sem felur í sér kennslu á gagnreyndum aðferðum til að þjálfa núvitund (mindfulness) og styrkja tilfinningagreind.
Farið verður yfir leiðir til að þjálfa athygli, auka sjálfsþekkingu og samskiptafærni og hlúa að hjálplegu hugarfari sem gagnast í einkalífi og starfi.
NÆSTA VINNUSTOFA
18. og 19. nóv. milli kl. 09:00-17:00 2ja klst. eftirfylgnitími 2 vikum síðar.
Leiðbeinendur: Anna Dóra og Margrét Arnljótsd. Smelltu HÉR til að skrá þig hægra megin á síðunni.
Vinnustofan er skipulögð í samræmi við metsölubókina „Search Inside Yourself“ eftir Chade-Meng Tan en hann er einn af frumkvöðlum fyrirtækisins Google og var falið að þróa námskeið til að bæta sköpunargáfu, afköst og ánægju starfsmanna. Sökum velgengni þess hjá fyrirtækinu þá er það ein eftirsóttasta vinnustofan í heilsu, hamingju, leiðtogahæfni og sköpunargáfu í Bandaríkjunum um þessar mundir
Námsmarkmið
Markmið vinnustofunnar er að þjálfa núvitund og auka tilfinningagreind, sjálfsþekkingu og samkennd. Styrkja persónulega getu og færni til að nýta til fullnustu í einkalífi og starfi.
Kennsluform
Stuðst verður einna helst við reynslunám (experiential learning) þar sem áhersla er lögð á að þátttakendur upplifi efnið á eigin skinni með hugleiðsluæfingum og annarri hugarþjálfun. Einnig verður fræðsla og umræða.
Kennslugögn
Með vinnustofunni fylgir bókin „Núvitund – leitaðu inn á við“ eftur Chade –Meng Tan og hugleiðsludiskur.
Fyrir hverja
Vinnustofan er fyrir alla sem vilja kynna sér nálgun núvitundar til að takast á við streitu daglegs lífs og auka almenna vellíðan sem skilar sér bæði í einkalífi og starfi.
Tími
Vinnustofan stendur yfir í 2 daga milli kl. 9:00-17:00. Mælt er með að þátttakendur taki frá 20-40 mínútur á dag til að gera núvitundaræfingar eftir að vinnustofu lýkur.
Þátttakendum býðst síðan að koma í 2 klst. eftirfylgnitíma 2 vikum eftir að vinnustofu lýkur til að gefa þeim tækifæri til að ræða upplifun sína varðandi núvitundarþjálfunina. Verð: 53.000 kr.