Vöfflur með vanillurjóma og karamelliseruðum pekanhnetum
Hérna eru sko komnar aldeilis dásamlegar vöfflur og væri ekki tilvalið að skella í þessa uppskrift um páskana?
Hráefni:
4 egg
400 ml súrmjólk
300 g Kornax hveiti
1 tsk matarsódi
2 msk sykur
1/2 tsk salt
2 tsk vanilludropar
4 msk smjör, brætt
Aðferð:
Þeytið egg og súrmjólk saman.
Blandið þurrefnum saman í skál, bætið eggjablöndunni og smjörinu saman við og hrærið vel saman.
Hitið smá smjör í vöfflujárninu og steikið hverja vöfflu í nokkrar mínútur. Berið fram með vanillurjóma, sultu og karamelliseruðum pekanhnetum.
Karamelliseraðar pekanhnetur
poki pekanhnetur
50 g sykur
1 msk smjör
rjómi, magn eftir smekk
Aðferð:
Bræðið sykur á pönnu.
Þegar sykurinn er uppleystur bætið þið smjörinu út á pönnuna og hrærið í. Saxið hneturnar og setjið út á pönnuna, steikið í 1 -2 mínútur. Hellið rjóma út á blönduna og hrærið aðeins saman.
Vanillurjómi
250 ml rjómi
2 tsk vanillusykur
Aðferð: 1. Setjið rjóma og sykur í skál og þeytið þar til rjóminn er orðinn léttþeyttur.
Dásamleg uppskrift frá evalaufeykjaran.com