Umræðuþráðurinn ber heitið: „the most common mistakes guys make in bed“ og varpar ansi hreinskilnu ljósi á hvað konur telja fráhrindandi í rúminu og getur eflaust hjálpað ófáum karlinum að vega og meta hvernig best og áhrifaríkast er að gæla við konu svo bæði megi ná hámarki fullnægingar og njóta atlotana í botn.
Sé einhver hér að velta því fyrir sér hvers vegna einungis karlmenn eru teknir fyrir í þræðinum og varpa upp þeirri spurningu hvers vegna konur séu undanskildar fyrrgreindri gagnrýni, bendum við hins vegar á umræðuþráðinn: biggest mistakes girls make sem einnig er að finna á Reddit og tekur á þeim klaufaskap sem konur geta tekið upp á í svefnherberginu líka.
Hér að neðan má finna samantekt í íslenskri þýðingu, en það var lífsstílsvefurinn AskMen sem tók saman fáein svör sem bar upp í umræðuþræðinum og við endurbirtum hér.
Athygli skal vakin á því að svörin eru óvægin og mjög myndræn í eðli sínu og því er rétt að vara lesendur við áður en lengra er haldið; ekki er ætlunin að særa blygðunarkennd lesenda heldur einungis varpa ljósi á það hvernig kynin tvö ræða saman sín á milli undir fjögur augu þegar kynlíf ber á góma:
„Ég meina, þú kannski finnur snípinn en hamast á honum eins og þú sért að reyna að veita mér núningssár af bruna?”
„Þegar gaurinn reynir að nudda þig, en þrýstir svo fast á snípinn að það er eins og maðurinn sé að reyna að nudda í gegnum snípinn og bora niður í lífbeinið eða eitthvað. Ef gellan veinar ekki: „Oh, fastar, fastar, gerðu fastar!” þar til þú ert einmitt farinn að hamra á snípinn, ekki nudda þá fastar. Plís. Bara ekki gera það. Nuddaðu bara blíðlega í byrjun og vertu viss; ef hún vill að þú sért harðhentari, þá lætur hún þig vita.”
„Láttu heyra í þér. Dauðaþögn er ekki sexí.”
„Alltof margir gaurar galopna munninn þegar þeir fara í sleik og það er alveg eins og þeir séu að reyna að éta á mér andlitið.”
„Ekki stinga fingrunum inn í leggöngin á mér og gramsa eins og þú sért að reyna að finna týnda smápeninga.”
„Það er ekkert gott að vera fingruð af karlmanni með langar fingurneglur. Ekki hreyfa puttana ótt og títt inn og út úr píkunni á mér, eins og ég þurfi bara á fimm sekúndna forleik að halda. Það er ekki nóg til að væta mig að neðan. Í alvöru, það vill engin kona fá granna fingur sem herma eftir hreyfingum getnaðarlims, með hvassar fingurneglur á endanum – ótt og títt inn og út úr þurrum leggöngum.”